Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Síða 112

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Síða 112
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Bók þeirra Lundebys og Torviks er alls 116 síður og hefst á inngangi um mannlegt mál almennt, mállýzkur og skyldleika tungumála. Síðan er kafli um frumnor- rænu, sagt frá rúnaristum og breytingum norrænnar tungu frá því fyrir víkingaöld og meðan vestnorræn mál voru að heita mátti eitt mál. Síðan segir frá vaxandi áhrifum sænsku og dönsku (vegna yfirráða þeirra þjóða yfir Noregi) allt frá lokum 14. aldar, hnignun og falli forns norsks ritmáls; allir voru lærðir upp á dönsku og það var sjaldgæft að menn skrifuðu nokk- uð um daglegt mál norskrar alþýðu nema til að lýsa því hvað það væri skringilegt og ólíkt venjulegu máli, eins og lærðir menn kölluðu þá dönsku. En alþýða manna hélt máli sínu furðulítt breyttu frá siðaskiptum og fram að iðnvæðingu og fólksflutningum síðustu mannsaldra. — Flestar meiri háttar breytingar sem norsk- ar mállýzkur hafa orðið fyrir frá fom- norsku festu rætur fyrir 1500. — Síðan segir frá upphafi þess að Norðmenn seinni alda fóm að leggja rækt við móðurmál sitt, starfsemi leiðtoga eins og Knuds Knudsens (1812—1895) og Ivars Aasens (1813—1896), og jafnréttisbaráttu lands- máls við ríkismálið. 1892 vora samþykkt lagafyrirmæli um að skólanefndir skyldu ákveða hvort kennsla í bamaskólum færi fram á landsmáli eða ríkismáli, en raunar skortir á það enn í dag að skólar þar sem kennslumálið er nýnorska eigi völ eins fjölbreyttra bóka og þeir sem nota bókmál. Markaður fyrir rit á bókmáli er sem sé stærri en fyrir rit á nýnorsku, og því væn- legri gróðalind. (Vitanlega er ekki sagt frá slíkum hlutum í kennslubókum eins og þessari, því að hún er „hlutlaus", en þetta viðurkenna allir sem til þekkja.) Síðasti hluti bókarinnar er svo um þróunina eftir aldamótin síðustu, („Pá veg mot sprákleg samling"), rakin helztu atriði stafsetning- arbreytinganna 1901 (landsmál), 1907 (rík- ismál), 1917 (bæði málin), og 1938 (bæði málin). — Loks lýkur svo bókinni með frásögn frá stofnun og starfsemi málnefnd- arinnar norsku (stofnuð 1952), stuttum köflum um þróun annarra norrænna mála og nokkmm norskum mállýzkuköflum. Frágangur bókarinnar er hinn bezti og er þar meðal annars fjöldi textasýnishorna frá ýmsum tímum. Árni Böðvarsson. 190
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.