Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Blaðsíða 95

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Blaðsíða 95
EINMANA MAÐUR? málabrask. Kona hans og barn eru dáin. Hann hittir aftur flökkukindina fögru, sem hann hafði miskunnað áður; nú er hún ást- kona vopnasala. Blásnauður, vonsvikinn, hugaður og ellimóður gefur Verdoux sig fram við lögregluna af hreinum lífsleiða. Vitandi vits heldur hann í átt að fallöxinni. Atburðarásin var látin gerast í Frakk- landi, en það verður að telja algera varúðar- ráðstöfun. Með þessum herskara af ríkum og sérgóðum miðaldra konum hafði Chap- lín Bandaríkin í huga, þar sem fimmtugar Scarlettar stjórna ekki aðeins siðsemissveit- unum heldur og verulegum hluta bankanna. Þessi morðleikur var heimspekileg og sið- ferðileg dæmisaga, samin kringum Ver- doux, mann sem „hefur fundið hvað feitt er á stykkinu*4. I viðtali skýrði Chaplín þannig aðalhug- myndina í kvikmynd sinni: Þýzki hershöfðinginn von Clnusewitz taldi styrjöld rökrétt áframhald utanríkis- þjónustu með öðrum aðferðum. Verdoux lítur á glœpi sem rökrétt áframhald við- skiptalífsins með öðrum aðferðum. Inntak þessarar kenningar skvrist ef setn- ingunni er snúið við. Chaplín telur þjóðfé- lag, sem hefur viðskipti að undirstöðu, vera þjóðfélag, sem hefur glæpi og styrjaldir að undirstöðu. Þetta litla einkafyrirtæki Ver- doux verður þannig smækkuð mynd af þeirri veröld skelfingar og tilgangsleysis sem spottuð var í Nútímanum og Einrœðis- herranum. Verdoux er í senn persónugervingur og dómari þess þjóðfélags sem skóp hann. Þessi fíngerði, kaldi, hitri og hættulegi maður hagnýtir sér til persónulegs ábata sjálf lögmálin í kerfi stjórnleysisins. Þegar Verdoux stendur andspænis dómaranum er hann viss í sinni sök þegar hann segir: Sá sem drepur einn mann er morðingi, en sá sem drepur milljónir manna er hyllt- ur sem hetja. Þeir menn eru vegsamaðir og dýrkaðir sem finna upp sprengjur til að limlesta konur og börn. Aðeins þeir sem vinna í stórum stíl njóta viðurkenningar í heiminum ... Hinn kaldrifjaði einstaklingshyggjumað- ur Verdoux, þessi beiski mannhatari, var eins og söguhetja úr heimspekiróman frá 18. öld. I Evrópu, þar sem myndin fékk þó býsna góðar undirtektir, var greinilegt að það urðu almenningi vonbrigði að fyrir- finna ekki fornvininn Chaplín. Fólk sakn- aði ekki aðeins gervis og gamalla fata. Menn fylgdust undrandi með þessari hvít- glóandi, markvissu eyðileggingu, sem ekki mildaðist eitt andartak af hinni gunnreifu hjartsýni úr Drengnum eða Einrœðisherr- anum né hinni djúpu viðkvæmni úr Borgar- Ijósunum. Fólk heyrði hjarta Chaplíns ein- att slá í brjósti Verdoux og skildi ekki hvers vegna hann var svona gagntekinn beiskju, örvæntingu, já allt að því hatri. Til þess að skilja hvatir lians er nauðsynlegt að þekkja nokkuð til þeirra ofsókna sem hann sætti. Evrópubúar héldu að Chaplín væri enn sami auðugi og frægi leikarinn, hylltur af alþýðu manna. En Chaplín, sem fólk taldi ennþá „Holly- wood-stjörnu“, var nú orðinn einmana mað- ur í baráttu við forheimskunarvél banda- rískrar kvikmyndagerðar. Eg lief ákveðið að segja Hollywood og íbúum hennar stríð á hendur í eitt skipti jyrir öllf skrifaði hann í desember 1947, nokkrum mánuðum eftir frumsýninguna á „Monsieur Verdoux“. Eg hef aldrci liaft mœtur á nöldrurum, en þar sem ég hef misst alla trú á Hollywood og bandarískum kvik- myndum yfirleitt hej ég ákveðið að segja þetta. Það er vitað lwerjar viðtökur „Monsieur VerdouxiC fékk í mörgum bandarískum borgum, ekki sízt í New York — ég er hrak- 285
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.