Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1963, Side 3

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1963, Side 3
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR • 24. ÁRG. • SEPT. 1963 • 3. HEFTI VIÐREISNARLÆRDÓMAR AÞESSUM haustdögum er viðburður að hitta mann sem ekki bölvi ríkis- stjórninni í sand og ösku. Jajnvel „gula pressan“, sem fyrir tveimur eða þremur mánuðum hrósaði öllu því sem jrá ríkisstjórninni kom, er nú orðin hatrammur stjórnarfjandi, og má þá með sanni segja að fokið sé í flest skjól. Það er eins og allt í einu hafi fallið himna frá augum almennings og hann skilji nú þá miskunnarlausu staðreynd að stefna núverandi ríkisstjórnar hejur frá upphafi verið mannhatur mestanpart, og að öðru leyli ábyrgðarlaust glaprœði. Því verður sem sé ekki í móli mœlt uð hingaðtil hefur ríkisstjórninni með áróðri sínum orðið mikið ágengt í að vinna til fylgis eða hlulleysis furðu- slóran hluta þjóðarinnar. Margbásúnuð loforð stjórnarspekinganna um „jafn- vœgi“, „heilbrigðan þjóðarbúskap“, framfarir og þœgilegl líf, sem mundi fylgja sjálfkrafa í kjölfar „frjálsrar samkeppni“, ajnáms gjaldeyrishafta, „réttrar“ gengisskráningar, „frjáls viðskiptalífs“, — þessi tröllaukni svindil- boðskapur um sjálfvirkt samspil þjóðfélagsaflanna fyrir atbeina hins „frjálsa framtaks“, sem allar sérréllinda- og einokunarklíkur hafa að sígildu fagnað- arerindi, hefur hljómað fagurlega í eyrum margra lítt pólitískra mannu. Hann hefur höfðað til pólitískrar þreytu smáborguranna og til smáborgara- legra tilhneiginga alþýðu, til skammsýni hentistefnumanna, lil einstaklings- hyggju þeirra sem œtla að „bjarga sjálfum sér“ upp á eigin spýtur, og treysta því að ekki muni um einn kepp í sláturtíð þeirra slóru. En nú er hulan að fjúka af jafnvœgis- og heilbrigðisstefnu stjórnarinnar. Það er nú orðið augljóst fjölda manna sem tóku skrumið gilt, að sú stejna er ekki annað en dulbúin eigingirni dálítils hóps manna, sem mest hafa söls- að undir sig í þjóðfélaginu. Og það á ef til vill eftir að koma í Ijós bráðlega að sú óbilgirni sérliagsmunanna, sem ríkisstjórnin hefur veitt hið fyllsta frelsi, kann að verða skammgóður vermir sjálfum þeim sem forréttindanna áttu að njóta. Nú er tœkifœri fyrir alþýðu manna að staldra við og líta til átta. Hver er ávöxtur baráttunnar eftir fjögurra ára Viðreisn? Hver er hlulur alþýðunnar í gróða braskaranna, bankanna, innflytjendanna, húsnœðisspekúlantanna, okr- aranna? A þessum árum hefur alþýðan hvað eftir annað gerl lilraunir til að 193 13

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.