Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1963, Síða 13

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1963, Síða 13
EFTIRMÆLI KALDA STRÍÐSINS ið hér, enda fer höfundur fljótt yfir þá sögu. Prófessor Fleming setur upp tíu atriði til skýringar því, Hversvegna við töpuðum Kalda stríðinu. Verða þau rakin hér nokkru nán- ar, og er hin fyrsta orsökin að dómi höfundar sú, að „Við neituðum að viðurkenna afleiðingarnar af heims- styrjöldinni síðari.“ „Kalda stríðið hófst sökum þess, að almenningsálit í Bandaríkjunum gat ekki viðurkennt helztu afleiðing- ar heimsstyrjaldarinnar síðari. Bandaríkjamenn höfðu barizt til þess að sigra fasismann, og þegar það var húið og gert, komust þeir að raun um það, að kommúnisminn hafði náð á sitt vald stórum svæðum, og að þj óð- félagsleg hylting var allsstaðar í fram- sókn. Truman forseta og hópi ann- arra var ómögulegt að sætta sig við það, að Sovétríkin hefðu yfirstjórn Austur-Evrópu. Hægri armur Repú- blikanaflokksins og fjöldi annarra gat alls ekki sætt sig við kommúnista- byltinguna í Kína.“ Höfundur ræðir þetta síðan nánar og kemur svo að öðru atriðinu: 2. Við reiddum okkur á kjarnorku- einokun og vanmátum vísindi og iðn- að Sovétríkjanna. „Atómvísindamenn okkar gerðu allt, sem í þeirra valdi stóð, til þess að sannfæra okkur um það, að eftir Hiroshima væru engin kjarnorku- leyndarmál til, og Sovétríkin myndu senn gera sína eigin sprengju, en stj órnmálamenn og hershöfðingj ar vildu ekki trúa þeim. Þeir voru sann- færðir um það, að langur tími myndi líða þangað til seinvirkir kommún- istar yrðu færir um slíkt. Þetta var eðlilegur, þjóðernislegur framgangsmáti til þess að gæta „leyndarmálanna“. Það var eðlilegt og mannlegt fyrir okkur að gera á- ætlun um alþj óðlegt eftirlit, sem tryggði það, að Sovétríkin hefðu aldrei atómsprengju í höndum. Það var meir en lítið óvenjulegt, þegar stjórnmálamaðurinn Simson hvatti til þess, að komizt væri að einhverju samkomulagi við Rússa. Það var enn óvenjulegra þegar almenningsálitið í Englandi var einróma hlynnt því að láta Rússum leyndarmálið í té. Hefði þetta verið gert, hefðu Rúss- ar ekki getað státað af eigin afrekum, eins og þeir geta nú, og Vestur-Evrópa myndi ekki lifa í þeim skugga atóm- eyðileggingar, sem hún gerir í dag og hefur gert allt frá þeim tíma, er Sovét- ríkin sprengdu atómsprengju sína 1949 — og lögðu grundvöllinn að evrópskri hlutleysisstefnu. Sú ákvörðun okkar 1949 að hefja þegar smíði vetnissprengjunnar var aldagömul valdajafnvægisstefna, og óhjákvæmileg, en sú ákvörðun að bíða nýrrar styrkleikaaðstöðu áður en alvarleg tilraun væri gerð til þess 203
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.