Tímarit Máls og menningar - 01.09.1963, Side 17
EFTIRMÆLI KALDA STRÍÐSINS
Press, kom frá Moskvu 1954 skrif-
aði hann, „að rússneska þjóðin er
jafnvel ennþá hræddari við horfurn-
ar á nýju stríði en nokkur önnur
þjóð. Tæpast er unnt að hugsa sér
þjóð. sem minni áhuga hefur á því að
hefja krossferð í nafni byltingarinn-
ar eða í nafni einhvers annars.“ Rúss-
nesku leiðtogarnir þurftu líka langan
frið.
Þetta stafaði að sjálfsögðu af því
hræðilega tjóni, sem Sovétríkin
höfðu beðið í heimsstyrj öldinni síð-
ari og tvisvar áður frá 1914, enda
þótt við önsuðum ekki slíku, er við
tókum heilshugar upp hugmyndina
um heimsyfirráðastefnu þeirra. En
gátu ekki rússneskir herir hvenær sem
var haldið að Ermarsundi? Til þess
höfðu þeir lið, en hver einasti Sovét-
leiðtogi vissi það, að Sovétþjóðirnar
voru ekki færar um að hefja árásar-
stríð, allra sízt stríð, sem hefði í för
með sér þátttöku Bandaríkjanna með
gífurlegum, óskertum styrk þeirra.“
Eftir að hafa rætt þetta nokkru
nánar kemur höfundur svo að fjórða
atriði sínu:
4. Við töldum kommúnisma jafngilda
fasisma.
„Við höfðum þurft að berjast við
fasismann, og kommúnisminn var
eins vondur eða verri. Þetta var önn-
ur hliðstæðan, sem Kalda stríðið var
háð eftir. Hún var einnig fölsk, en
slíkt gat enginn sagt áhættulaust.
Bölvun fasismans var fljótlega flutt
yfir á kommúnistana.
Þó var þessi hliðstæða hæpinn
grundvöllur fyrir Kalt stríð, þar eð
fasisminn var neikvæður, hann kúg-
aði og hann rændi og var kaldúðin
ein gagnvart fólki. Kommúnisminn
viðurkennir yfirborð lýðræðisins, en
fasisminn afnam það með öllu, gerði
gys að því og reyndi að ganga af
sjálfri hugmyndinni dauðri. Komm-
únismi og lýðræði kveðast bæði berj-
ast fyrir hagsmunum fjöldans, en fas-
isminn var beinlínis byggður á „af-
burðamönnum“ heima fyrir og út-
rýmingu erlendra þjóða eða fastá-
kveðinni þrælkun þeirra. Kommún-
isminn er kristin villutrú, sprottin upp
í hugum tveggja þýzkra millistéttar-
manna, sökum hins miskunnarlausa
óréttlætis ungrar iðnbyltingar, og
fullur af eldmóði fyrir þjóðfélags-
legu réttlæti. Það var meir en lítið
erfitt að finna neitt í kenningum eða
framkvæmd fasismans, sem eitthvað
ætti skylt við kristindóm eða húman-
isma.
Fasisminn var stríðið sjálft, sam-
einað glæpamennsku. Hann fyrirleit
menntun sem slíka og skerti hana
stórum, á sama tíma og kommúnistar
reyna að auka hana og útbreiða.
Kommúnisminn getur verið misk-
unnarlaus og fær um hræðilegar
hreinsanir, en hann reynir sem hann
má að bæta lífskjör og menningu,
jafnframt því sem hann eflir þunga-
207