Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1963, Síða 19

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1963, Síða 19
EFTIRMÆLI KALDA STRÍÐSINS krefj ast yfirráða yfir sálum og hegð- un annarra.“ Hættan var, að þeir, er höfðu „hrifsað til sín réttinn til að dæma um það, hvað væri uppreisn og hvað væri hundrað prósent amerík- anskt“ myndu svipta okkur frelsi okk- ar og setja á hreyfingu öfl, sem gætu eyðilagt okkur. William 0. Douglas, dómari, skrif- aði einnig, að „við sviptum menn at- vinnu og eyðileggjum álit þeirra með aðferðum eins grimmilegum og þeim, sem notaðar voru við réttarhöldin yf- ir Walter Raleigh, og að við lifum í taugaveiklun nærri því eins magnaðri og andrúmslofti galdrabrennunnar.“ Meðan galdraofsóknirnar stóðu sem hæst, reit Learned Hand, dómari, einn af virtustu lögfræðingum lands- ins, þessa skörpu aðvörun, sem fylgja mun okkur um kynslóðir: „Það þjóð- félag er þegar í upplausn, þar sem hver maður tekur að skoða nágranna sinn sem hugsanlegan óvin, þar sem frávik frá hinu viðurkennda, hvort heldur er í stjórnmálum eða trúmál- um, er tákn um ótryggð; þar sem á- kæra án rökstuðnings kemur í stað sannana; þar sem kreddufesta kæfir frelsi til andstöðu; þar sem trúin á yfirburði skynseminnar er orðin svo lítils megnug, að við þorum ekki að láta í lj ósi skoðanir okkar, hvort sem þær kunni að tapa eða sigra.“ í sér- hverri þessari setningu er harður á- fellisdómur um fráhvarf okkar frá frelsinu. Slíkt ástand, heldur Hand dómari áfram, „getur eytt því bindi- efni, er heldur steinunum saman, og getur að lokum leitt yfir okkur harð- stjórn eins illa og þá, er við óttumst.“ Hvernig frelsi vort rýrnaði. Þetta var það hyldýpi, sem við okkur blasti 1952. Þegar heimurinn sá okkur standa á þeim hyldýpisbarmi sann- færðist hann um það, að við tryðum hvorki á sjálfa okkur lengur né frels- ið — vonlaus aðstaða fyrir þj óð, sem taldi sig helztu forvígisþj óð frelsisins. í Englandi, þar sem sj álf hugmyndin um óenska nefnd var óhugsandi, end- urspeglaði Bertrand Russel almenn- ingsálitið er hann lét svo um mælt, að frelsið „væri á förum“ í Bandaríkj- unum. A förum var það, og enn minnkaði það, er 33 ríki samþykktu lög til að treysta trúnað kennara og losa skóla við „uppreisnartilhneigingar“. Það minnkaði enn, er ráðizt var á skóla- bækur af sj álfskipuðum ritskoðend- um, þegar bækur voru brenndar, bókavörður rekinn fyrir að hafa frj álslynd tímarit í hillunum og öll er- lend bókasöfn okkar hreinsuð af bók- um, er skrifaðar voru af fjölmörgum viðurkenndum höfundum, en slíkt er ein helzta aðferð einræðisstefnunnar. / átt að amerísku lögregluríki. Frelsi hvarf enn, er Truman forseti gaf út hina örlagaríku tilskipun sína 1947 um það, að FBI skyldi hafa ör- yggiseftirlit með öllum embættis- mönnum sambandsstjómarinnar, og tímarit máls oc mennincar 209 14
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.