Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1963, Side 39

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1963, Side 39
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR fangi að frelsa mannkynið undan oki kommúnismans, á þann einfalda hátt að eyða því. Þetta var orðað á skemmtilega op- inskáan hátt fyrir nokkrum árum, af einum háttsettum kirkjunnar þjóni í Bretlandi, á þessa leið, samkvæmt því sem útvarpsfréttir hermdu: Það er betra að heimurinn farist í kjarnorkueldi en verði kommúnism- anum að bráð. Þannig má það verða, að atóm- sprengjan gerist frelsari mannkyns- ins, frelsi það undan oki kommún- ismans. Það er með öðrum orðum gert ráð fyrir, að hinn svokallaði frj álsi heim- ur, sem játar lýðræði, mannréttindi, frjálsa hugsun og annað slíkt, eigi þess kost að líða píslarvætti fyrir þetta alltsaman, að ógleymdri trúnni á sjálfa atómsprengjuna. Smátt og smátt er verið að sætta okkur við tilhugsunina um það að við verðum að taka á okkur þá á- hættu, sem því fylgir, að standa vörð um frelsið og lýðræðið, og það þýðir án allra umbúða að við þurfum að vera við því búnir að deyja píslar- vættisdauða fyrir þessi veraldarinnar gæði. Hins vegar hefur það aldrei verið upplýst, hverjir eiga að njóta þessara gæða, eftir að ósköpin eru um garð gengin. Samkvæmt framansögðu má skipta prédikurunum í tvo flokka. í öðrum flokknum eru þeir sem boða okkur trúna á atómsprengjuna sem frelsara mannkynsins, undan oki kommún- ismans. Við þá er ekkert hægt að tala, þeir myndu heldur ekki skilja það mál sem við tölum, jafnvel þó þeir mæli á sömu tungu. Þeir eru að vísu hættu- legir, því þeir eiga yfirleitt greiðan aðgang að þeim ýmsu hjálpartækjum tækninnar, sem nútíma prédikari get- ur stuðzt við. En ef við gerum okkur ljóst, að þeir eru í öðrum flokki en andlega heilbrigðir menn, þurfa þeir ekki að verða okkur hættulegir. I' sjálfu sér gæti maður sætt sig við það að verða útmáður af jörðinni einn góðan veðurdag. Hitt væri vit- firring að líta á það sem hetjudáð, eða háleita fórn í þágu háleitrar hug- sjónar. í stuttu máli verðum við að trúa því að vitfirringamir fái glóruna aftur áður en þeir vinni sjálfum sér og öðrum skaða. í hinum flokknum eru svo allir þeir prédikarar, sem eru með nokk- urnveginn réttu ráði. Við þá myndum við áheyrendur vilja mæla eitthvað á þessa leið: Þér prédikarar, verið miskunnsam- ir. Minnizt þess, að einhver takmörk hljóta að vera fyrir því, hvað við get- um innbyrt mikið magn prédikana án þess að bíða við það tjón á sálum okkar. Minnizt þess, að einnig við vesælir áheyrendur, viljum gjarna eiga einhvem blett hið innra með okkur sem við getum ræktað sjálfir 229

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.