Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1963, Page 81

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1963, Page 81
UMSAGNIR UM BÆKUR Hér er allt miklu fágaðra en svo. Sögurnar í nýja bindinu — Gráskinna hin meiri er um það bil tvisvar sinnum lengri en upp- haflega safnið — láta yfirleitt ekki mikið yfir sér. Oft er sagt frá smávægilegum at- burðum — kona týnir eyrnalokkum og finnast aftur, högg heyrast á þili, fólk dreymir undarlega. En frásögnin er oftast nær notaleg, og lesandanum er ætlað að tengja einn viðburð við annan. Helzta sér- kenni margra sagnanna er óskýranlegt or- sakasamband milli tveggja viðburða. Hérna eru á ferðinni fyrirburðir, og eiga þeir sér langa sögu á landi voru. I fornsögum vor- um er þeim oft beitt af mikilli list, en hér bregður þeim fyrir í smáum þáttum, og sjaldnast benda fyrirburðirnir á heil örlög manna. Af draugasögum fer mikið fyrir sögum af Þorgeirsbola, þær fylla meira en fimmtíu síður í nýja safninu, og eru sumar þeirra allmergjaðar. Hér kemur einnig í ljós, að síðasti uppvakningur í Þingeyjar- sýslu komst á kreik snemma á 19. öld, og er hann nú væntanlega undir lok liðinn. Einstaka saga fjallar um álfa, og hér bregð- ur fyrir frásögnum af álagablettum. Meðan lögin um náttúruvernd voru enn ekki til, þá fundu menn af hyggjuviti sínu, að gott væri að umgangast sérkennilega staði af kurteisi: hól þenna mátti ekki slá, klettur- inn sá arni átti að fá að vera í friði, við þessum vallgrónu rústum mátti enginn hrófla. Gaman var að lesa hér Bassa sögu, sem Sigurður Nordal skrásetti haustið 1905 eft- ir Helga Guðmundssyni malara. Hún er snilldarlega gerð; með djarflegt efni er farið af einstakri alúð. Þetta er vafalaust langelzta sagan í öllu ritinu, enda á hún auðsæilega rætur sínar í kaþólskum tíma. Ilinir smekkvísu útgefendur Gráskinnu og höfundar láta sér einkar annt um frá- sagnir af atburðum, þar sem ekki er allt með felldu. En verk þeirra er auðsæilega unnið af mikilli ást á efninu og á íslenzku máli. Til útgáfunnar allrar er mjög vandað, enda er listfengi Hafsteins Guðmundssonar viðbrugðið. Fyrir nokkrum árum gaf Þjóð- saga út safn Jóns Árnasonar í ákaflega vönduðum ritum. Gráskinna hin meiri sýnir það ljóst, að Hafsteinn slakar lítt á kröfum sínum um list í bókagerð, og þáttur hans í verkinu gerir oss það enn ljúfara að þakka þeim Sigurði og Þórbergi fyrir skemmtun- ina. Hermann Pálsson. 271

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.