Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1964, Page 7

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1964, Page 7
ÞaS var á œskuárum vita, hvers konar vistarvera var í stofu A. Þangað voru fluttir deyj andi menn til þess að þeir gætu skilið við þennan heim í meiri kyrrð og ró en fyrir- fannst á venjulegum sjúkrastofum. Ég fór að gera mér hugmyndir um næturheimsóknina. Hér dóu svo margir ungir, að ekki var að furða þótt þeir ættu erfitt með að slíta sig strax frá þessari jarðnesku tilveru. Mikið varð ég fegin, að fá nú að vera innanum lifandi fólk. Hinn stóri borðsalur hælisins var þéttsetinn, þar sem rúmt hundrað manns sat í hópum að borðum. Þetta fólk var nær allt á bezta aldri, lang- flestir frá því um tvítugt og framyfir þrítugt. Eldra fólk sást varla. Allir voru þokkalega til fara, sumt kven- fólkið reyndar fínt. Mér var vísað til sætis, þar sem stórmikill virðuleika- hlær hvíldi yfir borðhaldinu. Allir þéruðust og réttu hvert öðru matar- ílátin með fyrirmannlegu látbragði. Borðræður voru álíka tiginmann- legar og annað í fari þessa fólks. Það ræddi um stjórnmál, um listir og skáldskap, trúmál og tilgang lifsins. Ég gat varla komið matnum niður fyrir lotningu. Brátt varð mér ljóst að heimamenn hér skiptust í rækilega aðgreinda flokka. Fyrst ber að telja fyrirfólkið. — Hér var sem sé fyrirfólk. — Karl- menn, höfðinglegir í framgöngu, tóm- látir í tali en riddaralegir við konur. Þeir höfðu mikið vit á skáldskap, og vissu allt um stjórnmál. Dómar þeirra voru óskeikulir, bornir fram af ör- yggi þess sem gerþekkir málaefni öll. Þá voru dömurnar. Þær voru engar venjulegar stúlkur. Þær voru á ó- ákveðnum aldri, allt frá því undir þrítugt, og hver veit hvað. Dömurnar voru alltaf prúðbúnar, vel greiddar og óaðfinnanlega snyrtar. Þær gengu hægt og virðulega. Hlupu aldrei við fót, eins og við þær yngri, sem ekki töldumst í svo ágætum flokki kvenna. Dömurnar luku upp hurðum hægt og hljóðlega, töluðu lágt, hlógu aldrei, brostu aðeins. Þær þéruðu alla, jafn- vel sínar eigin stofusystur og hver aðra innbyrðis. Allt þeirra tal virtist bera vott um göfuglát og fíngerð á- hugamál. Fyrirmennin voru alltaf í för með dömunum. Aldrei datt mér í hug að bendla svo upphafið fólk við ástamál. Raun- ar gengu þau oft saraan útivið, döm- urnar og fyrirmennin, stundum tvö ein úti í hrauni. Þegar þau sáust hverfa niður í einhverja lautina, þá taldi ég víst að nú væru þau að ræða skáldskap Einars Benediktssonar, eða eitthvað álíka djúpsætt og merkilegt umtalsefni. Ég fór að veita athygli ungum pilt- um, sem fóru einförum. Þeir gengu háleitir, mæltu ekki orð innanum hitt fólkið, nema þá sjaldan sem þeim liðu af vörum ljóðabrot, vísupartar 213
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.