Tímarit Máls og menningar - 01.11.1964, Blaðsíða 67
líf af Sámi, að hann hafi gert það
þvert ofan i hetjuhugsjón aldar sinn-
ar. Þótt Nordal telji Hrafnkels sögu
vera skáldrit samið seint á þrettándu
öld, þá virðist honum ekkert þykja
athugavert það, að höfundur hennar
lýsi mönnum og athöfnum þeirra
samkvæmt lífsskoðun hetjualdarinn-
ar, sem Nordal nefnir svo. En á vali
Hrafnkels er miklum mun nærtækari
og einfaldari skýring. Samkvæml
krislnum skoðunum, sem voru höf-
undi Hrafnkels sögu nákomnari en
allar hetjuhugsjónir heiðins siðar,
var það siðferðileg skylda Hrafnkels
að velja sér líf. Til gamans má minna
á, að í Njáls sögu er þetta boðorð
lagt í munn Kára í brennunni: „Það
er hverjum manni hoðið að leita sér
lífs, meðan kostur er.“
Sigurður Nordal gerir ráð fyrir
því, að höfundur Hrafnkels sögu hafi
verið vel lesinn í íslenzkum bók-
menntum: „Það ætti öllum að geta
komið saman um, sem kynna sér efn-
ismeðferðina í Hrafnkötlu, að svona
rit er ekki líkt því að vera samið af
bóklausum manni. Hitt þætti mér
sennilegra, að höfundur hefði lesið
allmikið af þeim bókmenntum, sem
til voru á Islandi um hans daga, þó
að hann hafi ekki sótt mikið af efni í
þær beinlínis til að setja þessa stuttu
sögu saman. Menntun hans hefur
hjálpað honum til þess að finna sjálf-
an sig og fara sínar eigin götur.“
Þessar athugasemdir Nordals um ís-
Siðjrœði Hrafnkels sögu
lenzkan bókakost höfundar virðast
vera mjög sanngjarnar. Auðsætt er,
eins og bent hefur verið á, að höf-
undur Hrafnkels sögu hefur þekkt
Droplaugarsona sögu, Víga-Glúms
sögu og enn önnur rit, svo sem Fóst-
bræðra sögu og Heimskringlu. En
hvað þá um útlend rit? Nordal er
ekki eins trúaður á það, að höfund-
urinn hafi orðið fyrir áhrifum frá
þeim: „Áhrifa erlendra bókmennta
(þýðinga) verður lítið vart í sög-
unni, en vel hafa þær getað verið höf-
undinum nokkuð kunnar.“ í þessum
dómi Nordals kemur berlega fram
tröllatrúin á sjálfstæði og ágæti hinn-
ar innlendu menningar, sem margir
telja lítt háða kristinni menningar-
þróun Vesturálfu. En Nordal hefur
látið það villa fyrir sér, að hann taldi
höfundinn vera af leikmannastétt, og
auk þess hlítir hann um of þeirri trú,
að sögurnar beri að skoða í hálf-
rökkri heiðinna lífsskoðana.
3
Nýjar rannsóknir á Hrafnkels sögu
hafa leitt í ljós, að höfundur hennar
var hámenntaður klerkur, og mætti
það undarlegt heita, ef slikur maður
léti þess engin merki sjást, enda má
segja, að í sögunni verði hvergi þver-
fótað fyrir kristnum hugmyndum.
Hún er öll gagnsýrð af kristnum
verðmætum, sem voru í hávegum
höfð á þrettándu öld. Hrafnkels saga
er skilgetið barn sinnar aldar. Hún
18 TMM
273