Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1964, Page 11

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1964, Page 11
ÞaS var á œskuárum sem átti að halda 1930. Jóhannes skáld kom og talaði af þvílíkum and- hita um þessa væntanlegu þjóðhátíð, að hún hirtist fyrir sjónum okkar sem ljómandi land, þangað sem allir þráðu að komast. Við sáum okkur í anda, skrýddar möttlum hlaðbún- um í skaut niður, með gullspöng um enni, reikandi um Þingvelli og Fögru- brekku, með Jóhannesi úr Kötlum. Aldrei hefur önnur slík hátíð verið haldin síðan; jafnþráð, umrædd og vegsömuð. Ekki einu sinni Lýðveldis- hátíðin sjálf komst til jafns við alla þá tilhlökkun og eftirvæntingu. Stjórnmálin fóru yfirleitt fyrir of- an garð og neðan hjá okkur unga fólkinu. Nema þar sem áttu í hlut stjórnmálamenn, sem eitthvað voru persónulega kunnir á hælinu. Einn þeirra var Einar Olgeirsson. Hann hafði dvalið hér fyrir stuttu, og var mönnum mjög minnisstæður. Engin hafði staðizt honum snúning í rök- ræðum um marxisma. Flestir áheyr- enda snérust annað hvort á hans mál, eða þögðu þunnu hljóði. Ef einhver andmælenda virtist staður og þver í taumi, vildi ekki láta sig, þá tók Einar hann með sér á göngu niður í hraun. Aldrei átti að hafa brugðizt að Einar Olgeirsson kæmi með manninn heim aftur sannfærðan marxista. Samt var marxismi Einars Olgeirs- sonar aðeins skáldlegir draumórar, samanborið við þann kröftuglega auglýsta veruleika sem fylgdi stjórn- málastefnu Jónasar Jónssonar frá Hriflu. Eiginlega vissum við ekkert að gagni um stefnu Framsóknar- flokksins, en því meira um Jónas Jónsson. Hann var aldrei kallaður manna á meðal annað en Jónas ráð- herra. Rétt eins og enginn hefði orðið ráðherra á undan honum. Sú frétt fór eins og eldur í sinu um hælið, að nú væri von á Jónasi ráðherra, í eftirlitsför, einhvern tíma á næstunni. Enda var Jónas Jónsson þá heilbrigðismálaráðherra, og virt- ist með þessari heimsókn ætla að sýna að hann tryði betur sínum eigin augum en annarra. Þegar ráðherrans var von, töldu sumir víst að þann dag yrðu okkur bornar dýrindis krásir, líkt og á jól- unum. Því að varla færi hælisstjórnin að láta bera á borð venjulegan mat eins og þann, sem framreiddur var dagsdaglega. Við vorum farin að raða réttunum í huganum, unz komn- ar voru birgðir eins og í dýrindis veizlu. Loks kom dagurinn mikli. Bifreið ráðherrans ók í hlað rétt fyrir hádeg- ið. Við ætluðum út úr gluggunum af forvitni. Ráðherrann gekk inn, blátt áfram og yfirlætislaus. Einhverjir forsvarsmenn hælisins tóku á móti honum. Nú var eftirvæntingin alveg á hástigi. Krásirnar, veizlan, hvernig ætli að verði nú umhorfs á matborð- unum? Loksins hringdi bjallan. Við þustum inn og settumst hvert í sitt 217
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.