Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1971, Síða 143

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1971, Síða 143
með er því ekki haldið fram að verkaskipt- ing ríkis og kirkju og völd hafi verið stöð- ug og ákveðin. Það var stöðug togstreita þar í milli, en hún var þess eðlis að hvor- ugur aðilinn gat án hins verið, og því var stöðugt leitað nýrra hlutfalla um völd og áhrif innan samfélagsins, á vissum tíma- skeiðum. Kirkjan var einn þáttur ríkis- valdsins, ein deild ríkisins samkvæmt róm- verskum hefðum frá dögum Konstantínusar mikla. Þegar kemur fram á miðaldir fóru hagsmunir kirkju og konunga saman, gleggsta dæmið var ríki Karls mikla, og trúboð var í senn sáluhjálparatriði og á- hrifamögnun ríkis og kirkju. Trúboð og veraldleg áhrif konunga haldast því í hend- ur, trúboðið varð pólitískt. Kirkjan studdi að auknu valdi nýturnaðra konunga til kristins siðar og kristnitaka fór fram á þann hátt, að höfðingjum var turnað til kristni með hótunum, gjöfum eða fortölum. Á þessum ófriðartímum var hernaður sú atvinnugrein, sem tryggði öryggi manna bezt ef vel gekk, æðsta hugsjónin var víg- fimur hermaður. Trú norrænna manna mót- aðist af nauðsyninni í þá átt, við að Óð- insdýrkun eykst, hermannaguðinn kom í stað frjósemisguðsins Freys. Þórsdýrkun var tíðust hérlendis í heiðni, og hæfði það vel samfélagi hænda, Þór var einnig guð allrar alþýðu, jafnvel þrælar ákölluðu hann. (F. J., Goðafræði). Þór og Freyr veittu mönnum afl og frjósemi. Það er eftirtektarvert, að það verða kristnaðir víkingahöfðingjar, sem „brutu fólk til kristni“, og tregðan gegn trúarskiptunum var einkum meðal þeirra, sem áttu Þór og Frey sér að fulltrúum. Frjósemisdýrkunin var meiri andstæða kristninnar heldur en hermannaguðinn Óðinn. Hugmyndir kristinna manna um Krist á 10. öld eru í stíl aldarfarsins, Kristur er dreginn upp sem voldugur konungur, krýndur og hetjulegur, guð, sem veitir Umsagnir um bœkur sigur. Trúboðar hafa getað sagt heiðnum konungum fjölda sagna um þátt Krists í sigri fylgjara hans, og þær útlistanir voru drjúgar til áhrifa á sigurþyrsta vígamenn. Jón Hnefill Aðalsteinsson hefur rit sitt á kafla um trú landnámsmanna og styður sig mjög við Landnámu, en í heimildum skortir mjög á heildarmynd trúarbragða landnámsmanna. Höf. telur að „Æsirnir sjálfir, trúin og blótin hafi skipað meira rúm í lífi þeirra og hugarheimi, en ýmsir fræðimenn hafa talið“, en hvað það rúm var mikið veit enginn. Þórsdýrkunin hér á Islandi bendir til samfélags sléttra bænda, sem hneigðust til samblands frjósemis- dýrkunar og jarðbundinnar kraftadýrkun- ar, en milli þessa og Óðinsdýrkunar var talsvert djúp. Það er mjög líklegt að höf- undur sjái réttilega, að Ásatrúin, sem er mjög víðtækt hugtak og getur táknað margvíslegar gerðir náttúrudýrkunar og fjölkynngi, hafi lifað hér meðal þess fólks, sem varð að hrökiast frá heimkynnum sín- um út hingað. Þótt hér væri mörg matar- holan, þá varð lítill afgangur til þess að standa undir eyðslu yfirstétta í líkingu við það sem gerðist sunnar í álfunni í sam- bandi við vopn og klæði, skartgripi og húsbúnað. Sá hópur manna, sem teljast mátti til yfirstéttar var fámennur og í þeim hópi bar nokkuð á Óðinsdýrkun og þar voru þau skáfd, sem nánust tengsl höfðu við landstjórnarmenn í Noregi. Höfundur liyllist til þess að gera hlut heiðninnar nokkuð svo meiri en efni standa til, einkum þann hlutann, sem fell- ur að niðurstöðum höfundar og gerir aftur á móti hlut Ólafs konungs Tryggvasonar full smáan. Höf. rekur réttilega viðbrögð landsmanna við trúboði, sem voru eðlileg viðbrögð bændasamfélags á jaðri heims- ins. Það fer ekki hjá því, að landsmenn hafi haft fregnir af ofsa Ólafs konungs í trúboði í Noregi og ekki urðu þeir hrifnir 333
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.