Tímarit Máls og menningar - 01.12.1978, Blaðsíða 10
Tímarit Mdls og menningar
með niður á stöð til að taka fingraför af honum. Ég vissi þegar í stað að ég
fengi ekki að sjá Nell framar. Það sem varð honum að falli var sú dapur-
lega ofsóknarhræðsla og sektarkennd sem býr með öllum fátækum negrum,
hvort sem þeir hafa framið glæp eða ekki. Það var sama ofsóknarhræðslan
sem gerði hann að morðingja á sínum tíma.
★ ★
Morgun einn hjó ég í eldinn handa þessari 104 ára gömlu konu í Suður-
Karólínu. Hún og dóttir hennar, 77 ára, urðu að höggva allan sinn eldivið
sjálfar. Lifnaðarhættir þeirra hefðu getað átt heima á miðaldabyggðasafni,
að vísu voru þær að því leyti betur settar en flestir nágrannar þeirra að
brunnur fylgdi húsinu. Tengdasonurinn var 97 ára og þau sváfu öll þrjú
í sama rúmi eins og negra hefur alltaf verið siður, ekki aðeins vegna
þrengsla heldur einnig til að halda á sér hita því arineldurinn kulnaði fyrir
dagrenningu. Hvíti landeigandinn átti húsið og fékk fyrir það í leigu 90
þúsund krónur á mánuði.
Sama dag sá ég aðra hlið á bandarískum veruleika þegar mér tókst að
komast inn á blaðamannafund Julie Nixon í Charleston enda þótt ég hefði
rifið stórt gat á aðra buxnaskálmina við eldiviðarhöggið og hefði ekki sett
upp stuttklipptu hárkolluna mína eins og ég var vanur við slík tækifæri.
Dóttir Nixons var í heimsókn á heimili fyrir þroskaheft börn og gekk um
og heilsaði þessum litlu, bækluðu börnum.
A eftir lögðu blaðamennirnir vingjarnlegar spurningar fyrir hana, en
undir lokin tókst mér að hleypa upp fundinum með því að spyrja hana
blátt áfram að því hvort henni fyndist það engin hræsni að heimsækja
þessi fötluðu börn þegar Nixon væri einmitt nýbúinn að beita neit-
unarvaldi til að stöðva lög um aðstoð við slík börn? Julie Nixon varð
vandræðaleg og gat engu svarað, og þannig varð spurning mín til að binda
endi á samkomuna. En þegar fréttamannafundurinn kom í sjónvarpi um
kvöldið var búið að klippa spurningu mína burt. Ameríkanar gátu þess
vegna haldið áfram að lifa í þeirri sjálfsblekkingu að þjóðfélag þeirra væri
gallalaust.
Líkamlega þroskaheft börn eru til innan allra þjóðfélaga. En sú bæklun
á sinni og greindarskerðing sem milljónir svartra barna verða fyrir í Banda-
ríkjunum vegna vannæringar eða sultar við meðgöngu eða í frumbernsku
er síður en svo óumflýjanleg.
344