Tímarit Máls og menningar - 01.12.1978, Page 16
Tímarit Máls og menningar
verður maður að tileinka sér eiginleika úlfsins, árangri verður aðeins náð
með því að stuðla að ógæfu annarra.
Viðtekin lífsspeki þjóðfélagsins hermir að ef menn svelti sé það þeim
sjálfum að kenna, því þeir vilji ekki vinna. En hvernig getur það þá við-
gengist, að margir þeirra sem svelta leggja á sig meira og langvinnara
erfiði en það fólk sem í raun ber ábyrgð á sulti þeirra og skorti?
★ ★
Ef við ættum að nefna aðeins eitt dæmi þess falska verðmætamats sem
kerfið hefur innrætt okkur gæti það verið þetta: áróðursvél vesturheims
hefur gert allt til að vekja aðdáun okkar á því að Bandaríkjamenn hafa
sent mann til tunglsins en alls ekkert til að draga athygli okkar að enn
stærra afreki mannsins, sem er það að fátæku, vanþróuðu ríki, Kúbu, hefur
tekist á þeim fáu árum síðan byltingin var gerð að lækka dánartölu barna
svo mikið að hún er lægri en meðal negra í Bandaríkjunum. Svarta Ame-
ríka, sem er innanríkisnýlenda í Bandaríkjunum, er líka í meginatriðum
mjög lík gömlu Kúbu að því er tekur til tæknilegrar og mannlegrar van-
þróunar....
Milljörðum er eytt í að berjast gegn fátæklingum í þriðja heiminum
og í að verja sig gegn fátæklingum heima fyrir. Aðeins eins dags stríðs-
rekstur í Víetnam kostaði jafn mikið og eytt var á tíu árum til úrbóta í
fátækrahverfinu Watts í Los Angeles eftir óeirðirnar miklu þar. Norfolk
í Virginia er ein af stærstu herskipahöfnum veraldar. Þessi veika og lang-
soltna kona hafði ekki efni á sjúkrabíl þegar hún reyndi að komast á
spítala vegna sárra verkja í brjósti. A hverjum morgni liggur hún í þessu
rúmi og horfir gegnum óhreinar rúður á herskipasmíðina fyrir utan. Það
er hægt að greina daufar útlínur flugvélamóðurskips í fjarska. Annað sér
hún ekki allan daginn. Hún á ekkert sjónvarp til að dreifa huganum, því
hún hefur ekkert rafmagn. I bjarma olíulampans getur hún stöku sinnum
séð í svip hluta af undrum veraldar: stríðsskip sem eyða jafn mikilli orku
á einni sekúndu og mundi nægja heimili hennar í hundrað ár. Henni er
kalt og veikindi hennar stafa ekki aðeins af hungri heldur er hún líka með
slæma lungnabólgu því hana vantar eldivið.
í hreysum Suðurríkjanna er oft ekki til eldiviður heldur, svo menn verða
að láta sér nægja hitann af útblástursgasinu þegar herflugvélar og sprengju-
vélar eru á æfingaflugi áður en þær eru sendar gegn fátæklingum í þriðja
heiminum.
346