Tímarit Máls og menningar - 01.12.1978, Page 17
Amerískar myndir
Það er enginn vafi á því að bandarískt þjóðfélag er að sínu leyti eitt hið
frjálsasta sem nú þekkist, en fólk nýtur ekki þess frelsis ef það leyfir sér
að draga í efa viðtekna samfélagsskipan. Þá fær það að kenna á hramm-
inum. Otaldir eru þeir negraleiðtogar og félagar Svörtu pardusdýranna sem
hafa verið skotnir til bana af lögreglunni á sínum eigin heimilum. Meira
en 30 svartir pardusar voru myrtir í forsetatíð Johnsons og um 400 fangels-
aðir. Og það eina sem þeir höfðu raunverulega aðhafst í verki gegn þjóð-
félagsskipaninni var að stofnsetja ókeypis heilsuhæli handa veiku fólki í
fátækrahverfunum og að útbýta ókeypis mat til fátækra barna, auk þess
sem þeir töluðu um nýtt, sósíalískt þjóðfélag. Nú eru aðeins tveir eftir af
svörtu pardusunum í Baltimore til að gegna þessu mikla starfi. Allir hinir
eru í fangelsi. Fimm þeirra voru dæmdir í lífstíðarfangelsi plús fimmtán
ár hver. Jafnvel hvítur verjandi þeirra hlaut fangelsisdóm.
★ ★
Popeye Jackson var upprunninn í fátækrahverfi og komst snemma í kast
við lögin. Hann lenti í fangelsi strax 10 ára gamall og eyddi síðan alls 19
árum bak við rimlana. En á þessari löngu dvöl þroskaðist hann smám
saman og byrjaði að lesa sér til í marxisma. Þegar hann kom „aftur út í
heiminn“ stofnaði hann stéttarfélag fanga og varð síðan formaður þess.
A tæpum fimm árum varð hann landskunnur og varð m. a. milligöngu-
maður milli Hearst-fjölskyldunnar og neðanjarðarhreyfingarinnar SLA sem
hélt Patriciu Hearst í gíslingu. Ahrif Popeyes á fangana urðu sífellt meiri
og lögreglan reyndi hvað eftir annað að koma honum í fangelsi afmr með
því að koma heróíni fyrir í bíl hans og fá honum refsað fyrir það. Popeye
var ekki gallalaus maður, og það tók mig nokkurn tíma að skilja hvaða
spor 19 ára fangelsisvera markar í huga manns; en þegar við fórum að
skilja hvor annan betur varð vinátta okkar sífellt nánari meðan við unnum
saman í stéttarfélaginu. Þess vegna var ekki nema eðlilegt að ég yrði setmr
inn um leið og hann þegar hann var fangelsaður afmr. Ég tók myndir
af honum og öðrum föngum með leynd, þær ætluðum við að nota í fanga-
blaðinu sem var smyglað inn til fanganna. Það hafði djúp áhrif á mig að
vera vitni að því hvernig Popeye reyndi stöðugt að skipuleggja starf meðal
fanganna þarna, við þessar ómannlegu aðstæður, þar sem allt einkalíf var
útilokað og þar sem kerfið neytti allra bragða til að lama mótstöðukraft
og persónuleika. Einmitt vegna þess hvað ég varð sjálfur magnþrota í
347