Tímarit Máls og menningar - 01.12.1978, Page 23
Banadarísk sagnagerð eftir seinna stríð
Robert Penn Warren, Henry Roth, Gertrude Stein, Sherwood Anderson,
Katherine Anne Porter, Edith Wharton og Ring Lardner, svo nokkrir hinna
helstu séu nefndir. Margir þessara höfunda hafa haft ómæld áhrif á bók-
menntir aldarinnar, og er mikið vafamál að nokkur þjóð önnur hafi samið
jafnblómlegar og fjölbreytilegar bókmenntir eins og Bandaríkjamenn á
fyrra helmingi þessarar aldar. Er það næsta ömurlegur vitnisburður um
bókmenntastarf og áhuga Islendinga hve lítið af þessum bókmenntum hef-
ur verið þýtt á íslensku, og mætti jafnvel segja mér að nöfn ýmissa þeirra
alþekktu höfunda sem ég nefndi séu nær óþekkt hér á landi — nema
kannski meðal bókmenntafræðinga.
Við fyrstu sýn kynni að virðast sem bandarískir höfundar eftir stríð séu
í öðrum og lakari gæðaflokki en obbinn af þeim höfundum sem nefndir
voru, en þar er vísast um að ræða skynvillu. Þeir eru of nálægt okkur í
tíðinni og hafa auk þess farið inn á allt aðrar brautir en fyrirrennarar þeirra,
rutt nýjar leiðir, fært út kvíar skáldsögunnar, og fyrir bragðið eiga menn
almennt erfiðara með að meta verk þeirra að verðleikum — fyrr en lengra
er um liðið og fengist hefur meiri yfirsýn yfir framlag þeirra í heild og
samhengi þess við bókmenntaþróunina.
En snúum okkur þá að núlifandi skáldsagnahöfundum. Tveir þeirra,
báðir af gyðingaættum, bera höfuð og herðar yfir aðra, þeir Saul Bellow,
sem hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels 1976, og Norman Mailer.
Saul Bellow fæddist í Kanada árið 1915 en ólst upp í Chicago þar sem
hann hefur alið aldur sinn. Tvær fyrsm skáldsögur hans, „Dangling Man“
(1944) og „The Victim“ (1947), eru að ýmsu leyti undir áhrifum evrópskra
höfunda, svo sem Kafka og Dostójevskís, og fjalla báðar um þann vanda
nútímamannsins að finna sér merkingarbæra tilveru í heimi sem er á hverf-
anda hveli og hefur týnt öllum viðmiðunum. Joseph, söguhetjan í „Dangl-
ing Man“, stendur andspænis möguleikum frelsis sem felur í sér fráhvarf
og firringu frá samfélagi hópsálarinnar, en afræður áður en lýkur að taka
þátt í leiknum og læmr skrá sig í herinn, þar sem hlýðni og agi em lög-
mál og losa menn undan persónulegri ábyrgð og frumkvæði. „The Victim“
fjallar beinlínis um gyðingavandamálið í Bandaríkjunum og dregur upp
Ijósa mynd af því flókna mynstri sem skapast við samskipti ólíkra kyn-
þátta, þar sem sundurleitar trúarskoðanir og menningarerfðir rekast saman.
Sagan er full af samúð með þeim sem ofsóttir em eða settir utangarðs,
hverjir svo sem þeir eru, og sýnir fram á samspil kynþáttafordóma og eftir-
sóknar eftir völdum og auði í samfélagi óheftrar samkeppni. Þó báðar
353
23 TMM