Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1978, Page 30

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1978, Page 30
Tímarit Máls og menningar rits, því hann er þeirrar skoðunar og hefur sýnt það manna best í verki, að öll mennsk hugsun, tilfinning, skynjun, hvöt og ímyndun er einn og óskiptur veruleiki: maðurinn er það sem hann hugsar og gerir. Af mörgum öðrum höfundum gyðingaættar sem sett hafa mark sitt á bandarískar bókmenntir síðusm áramga ber að nefna Bemard Malamud (f. 1914), sem í ljósum og safaríkum stíl lýsir kjörum venjulegs, einmana fólks í gyðingahverfum New York-borgar. Meginstef hans er einmana- kennd manneskjunnar, sem er fangi eigin umhverfis en yfirstígur að jafn- aði takmarkanir sínar og finnur eins konar endurlausn í þeirri sjálfsþekk- ingu sem þjáningin færir henni. Hjá honum vekur þjáningin í senn hlátur og leiðir til lífsskilnings eða lífssanninda sem endurfæða einstaklinginn. Meðal bóka hans má nefna frumsmíðina ,The Namral“ (1952), sem fjall- ar um handknattleikshetju, „The Assistant" (1957), sem tekur til með- ferðar vandamál innflytjenda og minnihlutahópa, „A New Life“ (1961) sem segir frá háskólaborgara á flótta frá New York vestur á bóginn, „The Fixer“ (1966), sem fjallar um örlagaríkt mál gyðings í Kiev árið 1913 sem ákærður var fyrir ritúal-morð á kristnu barni, og „The Tenants“ (1971), sem greinir frá örlögum tveggja rithöfunda, gyðings og blökkumanns, sem verða tákn þessara tveggja minnihlutahópa og þeirra sjálfstortímingarafla sem eru að verki meðal þeirra. Malamud er höfundur sem stöðugt leitar nýrra leiða og hefur léð um- fjöllun sinni um gyðingleg vandamál miklu víðari skírskomn, þannig að söguhetjur hans em í rauninni fulltrúar allra manna af öllum kynþáttum sem búa við misrétti og em ofurseldir fordómum umhverfisins. Fjórði gyðingurinn, ]. D. Salinger (f. 1919), á það sammerkt við Bellow og Mailer að hann fjallar ekki sérstaklega um gyðingleg efni, þó hann sé að sjálfsögðu mótaður af uppruna sínum og umhverfi á uppvaxtarárum. Hann hefur skrifað ákaflega lítið um ævina en náði strax óhemju vinsæld- um með fyrsm skáldsögu sinni, „The Catcher in the Rye“ (1951), sem þýdd hefur verið á íslensku undir heitinu „Bjargvætmrin í grasinu“. Sögu- hetjan er eirðarlaus unglingur, Holden Caulfield, sem skrópar úr skóla og 360
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.