Tímarit Máls og menningar - 01.12.1978, Síða 33
Banadarísk sagnagerð eftir seinna stríð
norðurfylki Bandaríkjanna og kynnast af eigin raun þeim ómannlegu kjör-
um sem olnbogabörn samfélagsins verða að þola allt sitt líf. Þessi næstum
gleymda skáldsaga er samin af ótvíræðum listrænum hagleik og djúpri
innsýn í almenn mannleg kjör.
Attaway sendi frá sér aðra skáldsögu, „Blood on the Forge“ (1941),
sem er sannkailað meistaraverk og tekur langt fram „Native Son“ að list-
rænu gildi, en hún hefur einnig hlotið furðu litla viðurkenningu vestan-
hafs, og er það mörgum hreinasta ráðgáta. Sagan fjallar um þrjá bræður
sem taka sig upp frá sveitasælu Suðurríkjanna og flytjast norður til Penn-
sylvaníu og fara að vinna í stálverksmiðju. Hvert einstakt atvik sögunnar
er þrungið Ijóðrænum og listrænum töfrum sem eru sjaldséðir í félagsleg-
um ádeilusögum, enda vafamál hvort flokka beri hana með þeim. I sög-
unni er einn bróðirinn drepinn í eldsvoða, en hinir tveir halda til stór-
borgarinnar í þeirri veiku von að þar finni þeir nýjar ræmr þó þeir eigi
enn ættingja og fjölskyldur syðra. Einn helsti styrkur bókarinnar er lýsing
bræðranna þriggja sem eru mjög sundurleitir að skapferli og lífsviðhorf-
um og verða eins konar tákn fyrir ýmsa áberandi þætti í fari blökku-
manna. Þessi stórbrotna skáldsaga lýsir ekki einungis tímamótum í þró-
unarsögu bandarískra blökkumanna, flutningunum frá landsbyggðinni til
stórborganna og iðjuveranna heldur fjallar einnig í víðara samhengi um
þau umskipti sem orðið hafa í bandarísku þjóðlífi á þessari öld og raunar
miklu víðar en í Bandaríkjunum. Þannig er sagan á vissan hátt ótíma-
bundin og almenn lýsing á mannlegum aðstæðum hvarvetna í heiminum.
Vera má að athyglin sem „Native Son“ vakti árið á undan hafi skyggt
á „Blood on the Forge“ sem er miklu heilsteyptara og algildara listaverk,
en viðtökurnar urðu því miður þess valdandi að Attaway hefur ekki svo
vitað sé skrifað staf síðan, og þar með glataðist bandarískum bókmennmm
einn efnilegasti höfundur þeirra eftir stríð.
Annar meiri háttar höfundur úr röðum blökkumanna er Ralpb EUison
(f. 1914) sem einungis hefur sent frá sér eina skáldsögu, „Invisible Man“
(1952), sem er löngu orðin sígilt verk og hefur hlotið verðskuldaða viður-
kenningu sem einn af hápunktum bandarískra bókmennta eftir stríð. Sögu-
hetjan er Suðurríkja-negri sem leggur leið sína til blökkumannahverfisins
Harlem í New York og kemur víða við. Hvarvetna þar sem hann kemur
363