Tímarit Máls og menningar - 01.12.1978, Qupperneq 41
Beskur og „kellingabtskur'
þeim þjónustu- og ástkonuhlutverkum sem löngum hafa einkennt þjóð-
félagslega stöðu þeirra. Fjarvera kvenna í tungumáli kemur ákaflega skýrt
fram í orðinu maður, sem merkir hvorttveggja í senn karlmaður og mann-
eskja yfirleitt. I íslenskri málnotkun er orðið ósjálfrátt skilið og túlkað
sem um karlmann sé að ræða, nema annað sé sérstaklega tekið fram. Að
karlmenn eru mannkynið, konur hitt kynið, má greinilega sjá í gerand-
nöfnum eins og verkamaðurfverkakona, forstöðumaðurfforstöðukona,
skáld/skáldkona, skátif kvenskáti, stúdentf kvenstúdent, lögreglafkvenlög-
regla, djöfullfkvendjöfull, rithöfundurf kvenrithöfundur, þar sem hið al-
menna orð er notað um karlmenn, hið kynbundna um konur.
Ekki þarf annað en fletta orðabókum til að sjá, að orðið kona tengist
allt öðrum merkingarsviðum en orðið karlmaður eða maður. Til að út-
skýra betur við hvað er átt, tek ég hér dæmi af grófari tegundinni, sem
er lslenzk-ensk orðabók frá árinu 1970.4 Orðin karl og karlmaður eru af-
greidd á hlutlægan hátt án aukamerkinga, og þau vekja greinilega engin
hugrenningatengsl hjá orðabókarhöfundi. Orðinu kona fylgir hins vegar
langur listi, sem ég get ekki stillt mig um að taka hér upp eins og hann
leggur sig:
kona: woman, dame; wife.
kona (falleg & keimsk): doll, pretty and silly woman.
kona (falleg, venusfögur): Venus, beautiful woman, beauty.
kona (fráskilin): divorcee.
kona (heldri kona): dame.
kona (íturvaxin og þrýstin, paradísarkona Múhameðstrúarmanna): houri
(ft. -s).
kona (lauslát): light-skirt, demirep.
kona með brókarsótt: nymphomaniac, (a woman with morbid and un-
controllable sexual desire).
kona (nemandi við stofnun fyrir btsði karla og konur): coed, (woman
student at a co-eductional institution).
kona (ósmekklega, illa, klesdd); dowdy.
kona, sem duflar: flirt, coquette.
kona (sem illt orð fer af): slut.
kona (sem sviptir sig klesðum á sýningu): stripper.
kona (sóðaleg): slattern, drab.
kona (ung, ógift): damsel, damosel.
kona, brúnhesrð og dökk á hörund: brunette.
kona, Ijós á brún og brá: blonde.
kona föður- eða móðurbróður: aunt.
konan (eigin-): one’s better half.
371