Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1978, Page 53

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1978, Page 53
Btskur og „kelltngabískur" Með þessum orðum tekst Sigurði að sanna það á Helga að hann sé kerling, og kveður hann þar með í kútinn. Kellingahrellingar dagblaðanna. Það hefur verið annað en gaman að vera gömul kona á íslandi á jóla- föstu árið 1964 í þeim mikla fögnuði og stórkarlahlátri sem spratt af kerl- ingaumræðum bókmenntafræðinganna. Að ekki sé talað um hvernig það hefur verið að vera skáldkona. Varla mátti opna svo blað að ekki blasti þar við einhver kerlingafréttin. Og allt var þetta ákaflega fyndið. Eitthvð virðist málið hafa verið til umræðu á blaðamannafundi sem haldinn var með Halldóri Laxness í lok nóvember vegna útkomu Sjöstafa- kvers. En í frásögn af fundinum slær AlþýðublaðiS 1. desember upp fyrir- sögninni „Kvenfólkið gerir okkur skömm til“, og viku síðar eða 8. desem- ber má lesa frásögn af sama fundi í Tímanum undir fyrirsögninni „Karl- menn hafa ekki roð við kvenfólkinu“. A fundinum gerir Halldór grín að þessari voðalegu hættu sem upp var komin, og spurningu Tímans um næsm bók svarar hann þannig: Annars er maður alveg að missa kjarkinn að skrifa bækur, það er komið svo mikið af kvenrithöfundum, sem gera okkur karlmönnum hreinustu skömm til. Eg má segja að ég hafi séð bókaauglýsingu í einu blaðinu í gær, og þar voru víst nefndar einar sjö skáldkonur, ha, kvenrithöfundur sprettur eins og fífill í túni, við karlmennirnir höfum ekki roð við þeim. í frásögn Morgunblaðsins 1. desember af fundinum má sjá að Halldór hefur bætt því við, að það „hefði verið furðanlega lítið um kvenrithöfunda á Islandi fram að þessu“. Eftir því sem ég fæ best séð, kemur orðið kerltngarbók í hinni endur- nýjuðu merkingu fyrst fyrir á prenti í Þjóðviljanum, sem ekki var blað- anna bestur í kerlingatalinu, þótt hann telji sig málgagn hinna kúguðu. En 3. desember birtist þar fréttatilkynning um bækur eftir Magneu frá Kleifum og Hildi Ingu undir fyrirsögninni „Tvær kerlingabækur". Byrj- unin sýnir að fyrir blaðamanninum eru „kerlingar“ og skáldkonur eitt og hið sama, en hann segir: Skáldkonurnar láta sig ekki vanta á jólavertíðina frekar en fyrri daginn. Tvær þeirra sem í skiprúmi eru hjá Bókaforlagi Odds Björnssonar beita sín hvorri ástarsögunni fyrir lesendur. 383
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.