Tímarit Máls og menningar - 01.12.1978, Side 70
Anton Helgi Jónsson
Saga úr þorskastríði
Nú er sungið um þorskastríð í sjómannaþættinum.
I nokkrar aldir hefur verið þrefað um veiðiréttinn á miðunum kringum
landið og gengið á ýmsu, aðallega í deilum við breta hin síðari ár. Hér
grufluðu þeir fyrrum í slíkri gullkistu að sagnfræðinga undrar hvers vegna
breska krúnan eignaði sér aldrei landið. En það tókst að slá á hendur
þeirra, reka þá út úr flóum og fjörðum og síðan lengra og lengra. í haust
var svo fiskveiðilögsagan færð út í 200 mílur, og dægurlögin í útvarpiou
fjalla um fleira en ballhúsaástir og fyllirí, því þorskurinn dansar síðasta
tangó í hafinu.
En breska útgerðarmenn angrar síst spurning um áframhaldandi þorsk-
líf og mannlíf. Eins og aðrir útgerðarmenn vilja þeir græða og senda
togara á Islandsmið, hvað sem íslensku eskimóarnir segja. Þegar Ægir eða
Týr klippa á togvíra veifa þeir hendi og herskip Hennar Hátignar eru
komin til verndar veiðiþjófunum og reyna að kafsigla varðskipin. Ekkert
bólar á samningum og aldrei hefur harkan verið meiri. Islensku ráðherr-
arnir, sem eru þó í hernaðarkompaníi með freigátunum, hafa jafnvel slitið
stjórnmálasambandi við bresku ríkisstjórnina.
Já, þorskastríð er í algleymingi og hérna í þorpinu sem annars staðar
ríkir ómælanleg gremja út í bretana.
Hér er sama sagan og í öðrum plássum, allt byggist á því að þorskur-
inn haldi áfram að lifa í sjónum. Að hann dafni og mennti sig í fjörð-
unum, ferðist kringum landið og eignist börn og buru. Verði loks orðinn
stór og feitur þegar mennirnir með ljáinn koma úr landi að sækja hann.
Þannig hefur það verið svo lengi sem menn og bækur muna. Hér er lifað
og dansað og dáið fyrir þorskinn, þó aldrei gangi andskotalaust að fá hann
upp úr sjónum. Áður voru bátarnir litlir og fáir, nú hefur þorskinum
fækkað og hann veiðist alltaf yngri og yngri. Flest skánar þó, og það er
langt um liðið síðan aflanum var seilað inn úr brimgarðinum, þar til nú
að hann er hífður í plastkössum upp á steypta bryggju, rétt við hliðina á
nýtísku frystihúsi.
400