Tímarit Máls og menningar - 01.12.1978, Síða 115
góðum rótum runnar, þ. e. að hún sé
að reyna að forða því að Ilmur lendi í
sama helvítinu og hún sjálf. En gallinn
er auðvitað sá, að sökum einangrunar
þeirrar sem hún hefur ætíð búið við
hefur hún ekki nægilega yfirsýn yfir
eigið líf til að geta útskýrt það fyrir
dóttur sinni, og þar með væri hún líka
að höggva að sjálfsmynd sinni á sárs-
aukafullan hátt.
Skólinn (Búrið)
Ilmur hefur smám saman verið að gera
sér grein fyrir að nám hennar byggist
að mestu leyti á aukaatriðum og til-
gangslausum utanbókarlærdómi, og
henni finnst sem aldrei sé komið að
kjarna málsins. Skólinn veldur henni
vonbrigðum vegna þess m. a. að hún
fær þar ekkert svar við þeim spurning-
um sem knýja á hana og snertir hvergi
þau vandamál sem hún veltir fyrir sér,
vandamál sem snerta hana sem persónu
og líf fólks og daglega tilveru. Um
landafræðistaglið segir hún við vin sinn,
Einar:
Er maður nokkru nær um það hvers
konar lönd þetta eru? Hvernig fólkið
þar lifir og við hvaða kjör það býr?
Það eru eintóm asnaleg aukaatriði í
þessum bókum. (37)
Ilmur er þeirrar skoðunar að til að bæta
úr þessu ófremdarástandi eigi kennarar
og nemendur að leggja saman í púkk
og koma með nýjar tillögur um skipu-
lag námsins. En það er víst hægara sagt
en gert (pælt en kýlt) því kennarar Ilm-
ar eru sadistar upp til hópa (a. m. k.
þeir sem mest koma við sögu, Sigurlaug
enskukennari og Grímur íslenskukenn-
ari), sem hafa ofnæmi fyrir unglingum.
Eini kennarinn sem virðist hafa mann-
Umsagnir um bcekur
legar taugar til að bera, Berta dönsku-
kennari, má sín einskis gegn svínaríinu,
er „fryst úti“ af samkennurum sínum,
og afleiðingin er sú að hún er orðin
„algjör alkohólisti". (64)
Því miður gefur bókin ekki viðhlít-
andi skýringu á því hvers vegna þeir
sem tolla í kennslu eru annaðhvort „and-
legir letíngjar, öldúngar eða sadistar"
(60) (eða alkohólistar...). Frásögn
Einars á reynslu Bertu, móður sinnar,
nær skammt:
Þessi tuttugu ár sem hún hefur verið
við kennslu hefur hún séð tugi úngra
kennara byrja kennslu, fulla af áhuga
og nýjum hugmyndum, og hvað verð-
ur svo úr þeim? Eftir eitt, tvö ár eru
þeir orðnir alveg jafn íhaldssamir og
þeir sem fyrir voru. Alveg sama vind-
þurrkaða íhaldspakkið. (64)
Þar sem sjónarhorn bókarinnar er
hins alvitra höfundar, þ. e. höfundur lýs-
ir aukapersónum jafnt sem aðalpersón-
um innan frá (hugsunum þeirra og til-
finningum), ef honum býður svo við
að horfa, og túlkar auk þess orð þeirra
og gerðir á stundum, þá finnst mér sú
dökka mynd sem hér er dregin upp af
kennarastéttinni ekki forsvaranleg. Oðru
máli gegndi ef kennurunum væri aðeins
lýst út frá sjónarhóli Ilmar (og hinna
unglinganna). Það er út af fyrir sig skilj-
anlegt að „vondir“ kennarar taki á sig
neikvæða mynd í þeirra augum.
Uppreisn Ilmar
Nú hefur verið gerð Iausleg grein fyrir
þeim tvískipta óskapnaði sem Ilmur vex
upp í. Hún er fimmtán ára og er smám
saman að vakna til sársaukafullrar með-
vitundar um sjálfa sig og margbreytileik
445