Tímarit Máls og menningar - 01.12.1978, Page 116
Tímarit Máls og menningar
mannlífsins. Sú lýsing finnst mér sann-
færandi, t. d. segir á einum stað:
A fáeinum mánuðum hefur Umur
misst takið á öllum haldreipum. Ekk-
ert er lengur öruggt, traust eða end-
anlegt. Tilfinníngar, sem hún þekkti
ekki áður nema af afspurn, úr bókum
eða annarra lífi, eru alltíeinu orðnar
hennar eigin. Tilfinníngar sem hún
hræðist. Skilur ekki. Einsog efi.
Kvíði. Svartsýni. (20)
Hún fyllist hatri og hræðslu í garð
móður sinnar þegar hún tekur æðisköst
og fleygir leirtaui í vegginn og hótar að
skera sig á púls — og síðan vanmáttar-
kennd: hvernig á hún sem er aðeins 15
ára að vera nægilega sterk til að hjálpa
móður sinni upp úr þessu örvæntingar-
innar hyldýpi? — Hún er líka hrædd
við kynlífið sem enginn hefur frætt
hana um og „þessa undarlega heillandi
tilfinníngu sem hún var sannfærð um
að væri ást“. (41)
Ilmur er reið og hneyksluð á bekkjar-
félögum sínum. Þau þora ekki að standa
með henni þegar hún segir Grími ís-
lenskukennara, „útsendara helvítis"
(138), til syndanna og þau smjatta hálf-
vegis á óförum Gunnhildar bekkjarsyst-
ur þeirra sem reyndi að fyrirfara sér.
Berta segir krökkunum að þau séu öll
samábyrg þegar einhver félagi þeirra
grípur til slíkra örþrifaráða, „þá hljót-
um við með einhverjum hætti að hafa
brugðist þeim, — sem vinir og mann-
eskjur". (94) Ilmur hafði fundið til
samkenndar með Gunnhildi, sem bjó
við erfiðar heimilisaðstæður eins og hún
sjálf. Og hún skammast sín fyrir að
hafa ekki reynt að hjálpa henni í tíma.
Það rennur upp óhugnanlegt ljós fyr-
ir Ilmi: hún og bekkjarfélagarnir eru
óðum að taka á sig mynd fullorðna
fólksins og hún hugsar með hryllingi:
— Við erum að verða einsog full-
orðna fólkið(...) Sama gleðin yfir
óförum annarra, sömu fordómarnir,
sama helvítis grimmdin.
Spegilmynd fullorðna fólksins.
Þannig erum við. (112)
Þessu vill hún sporna gegn. Hún viil
læra að hugsa, verða fær um að taka
ákvarðanir upp á eigin spýtur. Þess
vegna leitar hún liðsinnis Ara, 22 ára
bróður síns sem er fluttur að heiman.
Hann tekur hana í nokkra kennslutíma,
byrjar á að segja henni þá gullvægu
staðreynd að það sem haldi fólki gang-
andi, komi í veg fyrir að það steypist í
staursfar sé „vitneskjan um eigin fá-
fræði“. (81) Hún skuli temja sér að
gagnrýna alla hluti, aldrei taka neitt
fyrir gefið; með því móti geti hún
smám saman komist að raunverulegu
samhengi hlutanna. Þetta eru vissulega
holl ráð. En sjálfir kennslutímar Ara í
þjóðfélagsfræðum finnast mér helst til
harðsoðnir og minna mest á leiðara
sumra blaða. Og varla skil ég að 15 ára
unglingur geti melt spillingu og tví-
skinnung kirkjuvaldsins í einum munn-
bita eins og Ilmur virðist gera hér. Eftir
þrumuræðu Ara spyr hún einfaldlega:
„En af hverju sér fólk ekki í gegnum
þetta? Svona augljóst svínarí!" (85)
Persónu Ara hefði mátt gera betri
skil, því hann virðist eiga að vera hið
heilbrigða mótvægi við metorðakapp-
hlaup og andlega koðnun sem einkennir
flestar fullorðins persónur bókarinnar.
Uppreisn Ilmar felst í því að segja
skilið bæði við skólann og heimilið.
Hún flyst til bráðabirgða heim til Ara
og bókin endar þar sem Ilmur er í Kópa-
vogsstrætó á leið til vinnu í dósaverk-
446