Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Page 23

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Page 23
Hreyfing meðal farandverkafólks þar sem þetta er að öllu leyti í höndum verkalýðshreyfingarinnar og varla hægt að ætlast til að hún samþykki kröfur á sjálfa sig. Tvær nýjar kröfur höfðu bæst við. Um miðjan ágústmánuð höfðu tvær íslenskar farandverkakonur i Danmörku birt grein i einu dagblaðanna á íslandi. í greininni var bent á þau bágu kjör sem fjöldinn allur af íslensku farandverkafólki erlendis býr við, og þó sérstaklega þeir sem vinna við hótel- og þjónustustörf. Þær bentu á að það er umtalsverður fjöldi íslensks verkafólks sem vinnur við margs konar störf erlendis en hefur litla eða enga hugmynd um hver réttur þess er eða hvert það skuli leita réttar síns ef með þarf. Því gerðu þær eftirfarandi tillögur til úrbóta: Að íslensk verkalýðsfélög, skrifstofur ASÍ og Verkamannasambandsins hefðu allar nauðsynlegar upplýsingar um kaup, taxta og réttindi í þeim atvinnu- greinum sem íslenskt farandverkafólk sækir helst í til Norðurlandanna. Enn- fremur gætu verkalýðsfélög staðið fyrir áróðri fyrir því að fólk sem hyggur á vinnu þar ytra léti það verða sitt fyrsta verk að skrá sig í stéttarfélög. Þá var þess krafist að upplýsingar til verkafólks sem ætlar að leita sér atvinnu erlendis lægju fýrir hjá Verkamannasambandinu. Þá hafði þeim sem staðið höfðu í fararbroddi í baráttu farandverkafólksins orðið ljóst að útlent farandverkafólk á íslandi ætti við hliðstæð vandamál að stríða og því var sett fram krafa um að samningarnir yrðu prentaðir á ensku vegna erlends farandverkafólks. Umræður um málefni farandverkafólks urðu mjög litlar á þinginu, sem að hluta má skýra með því andrúmslofti sem þar ríkti, en þeir sem til máls tóku voru málstað farandverkafólksins mjög hliðhollir. Annan tón mátti þó greina í einkasamtölum, og er t. d. haft fyrir satt að einn helsti leiðtogi Austfirðinga- fjórðungs hafi spurt i forundrun hvort nú ætti að fara að hlaða undir helvítis braggalýðinn. Tillögu farandverkafólksins var vísað frá vegna formgalla. Þess í stað var ákveðið að VMSÍ skipaði 3 manna nefnd til að fjalla um málefni farandverkafólks. Kröfugerðin, og þær breytingar sem hún hafði tekið þegar hún birtist á þinginu, ber þess ljósan vott að álit farandverkafólksins á vilja og getu verka- lýðsforystunnar var mikið og bernskulétt bjartsýnin á framgang málstaðarins í hennar höndum ljómaði í hugum forystufólksins. Vonbrigði — og ráðstefnan í Eyjum Að þinginu loknu biðu þeir áköfustu spenntir aðgerða VMSÍ forystunnar og áhrifanna sem þær hefðu, en framkvæmdin dróst uns hún virtist alveg sofnuð. 149
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.