Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Side 26
Tímarit Máls og menningar
Að hverju herbergi skuli fylgja sturta, salerni og vaskur.
Að ræsting skuli framkvæmd daglega, skúraðir gangar o. s. frv.
Að farandverkafólki verði tryggð réttlát hlutdeild í setningu umgengnisreglna
í verbúðum.
Aðrar kröfur eru einnig útskýrðar stuttlega.
Annað plagg bar titilinn Endurheimt réttinda og þar var bent á með dæmum
að hluti af kröfum farandverkafólks nú eru kröfur um réttindi sem farand-
verkafólk hefur notið áður og sumt farandverkafólk nýtur i dag. Jafnframt var
þar getið samninga um kjör farandverkafólks á Austfjörðum 1897, og síðan
visað til bóka þeirra Theódórs Friðrikssonar og Jóns Rafnssonar sem heimilda
um að ekki var óalgengt í þá daga að farandverkafólk fengi fríar ferðir, fæði,
húsnæði og jafnvel vinnugalla.
Þriðja plaggið var stutt yfirlit um gildi farandverkafólks í sjvarútvegi fyrr og
nú.
Þá var lagt fram á ráðstefnunni dreifirit frá Baráttuhópi farandverkafólks á
Faxaflóasvæðinu. Þar birtist skýrast sú stefnubreyting sem orðið hafði meðal
farandverkafólks frá þingi Verkamannasambandsins.
Gegn aðgerðarleysi verkalýðsforystunnar var feitletruð fyrirsögn dreifiritsins, og
þar undir var hnífurinn og stálið, sem síðar hefur orðið tákn hreyfingarinnar. í
bakgrunni var krepptur hnefi, merki þeirra sem loforðin metta ekki lengur og
hyggjast því grípa til eigin ráða.
I dreifiridnu var atburðarásin rakin og stuðningsyfirlýsinga ASÍ og VMSÍ
getið. Ekkert var sagt hafa heyrst frá Sjómannasambandinu, þó ætla mætti að
helmingur farandverkafólks væru starfandi sjómenn. Um aðgerðaleysi verka-
lýðsforystunnar sagði að ekkert hefði heyrst frá VMSÍ eða ASÍ, hvað þá Sjó-
mannasambandinu, að nú ætti að fara að fylgja loforðunum eftir og rétta hlut
þessa kúgaðasta hluta íslenskrar verkalýðsstéttar.
Getur verkafólk ekki lengur treyst sínum eigin félagasamtökum? Er verkalýðs-
forystan það pólitískt rotin að hún beiti sér aðeins fyrir málefnum sem eru
bitastæð í pólitíkinni, en láti svo baráttuna um brauðið sitja á hakanum?
Farandverkafólk krefst af forystu fjöldasamtaka alþýðunnar í þessu landi að þau
styðji farandverkafólk í þessari baráttu, því hún er hluti afbaráttu allrar verkalýðs-
og sjómannahreyfingarinnar gegn útgerðarauðvaldinu. Standið því við gefin
loforð um stuðning við baráttuna.
Þessu dreifiriti var einnig dreift á Stór-Reykjavíkursvæðinu fyrir ráðstefnuna.
Til Eyja á ráðstefnuna var forystu verkalýðshreyfingarinnar boðið sérstaklega,
152