Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Blaðsíða 39
Hreyfing medal farandverkafólks
Hvað svo scm vinnuveitendur og Alþýðusambandið eru reiðubúin til að
ganga langt í þessari nefnd varðandi þá reglugerð sem fyrirhugað er að setja um
starfsmannaíbúðir, þá er afstaða hópsins skýr. Hún er sú að innan skipulagðra
byggðakjarna verði ekki neitt húsnæði löglegt sem ekki fellur að stöðlum
heilbrigðisreglugerðar og byggingarreglugerðar um ibúðarhúsnæði. Um hús-
næði utan skipulagðra byggðakjarna telur hópurinn að stefna beri á það hús-
næði sem Landsvirkjun flutti inn frá Noregi og er afurð af samningum norsku
verkalýðssamtakanna og ríkisvaldsins frá 1974 um húsnæði verkamanna við
járnbrautir og virkjanir. En fari það inn í reglugerð hefur það í för með sér að
stór hluti húsnæðis sem er í eigu ríkisins, svo sem hjá Vegagerðinni, Raf-
magnsveitunum og annars staðar, verður með öllu ólöglegt.
A meðan safnað var upplýsingum um verbúðahúsnæði ræddi nefndin mál-
efni erlenda farandverkafólksins og þar hafa þegar náðst fram ákveðnar breyt-
ingartillögur á lögum um rétt erlendra manna til að stunda vinnu á Islandi, sem
tvímælalaust eru erlenda verkafólkinu í hag. Með þessum breytingum á lögun-
um verður ríkisvaldið ábyrgt fýrir þeim upplýsingum sem veita á erlendu
farandverkafólki áður en það heldur til landsins. Vinnumálaskrifstofa félags-
málaráðuneytisins, sem var sett á stofn skv. Olafslögunum, fær þetta verkefni,
og verði það til þess að aukið líf færist í hana verður það að líkindum allri
verkalýðshreyfingunni til góðs. En í þeim upplýsingum sem þessi skrifstofa á að
útbúa og dreifa til þeirra útlendinga sem hyggjast sækja hingað til starfa skai
greint frá launakjörum, vinnutíma, aðbúnaði við vinnu hér á landi, sköttum og
opinberum gjöldum, rétti til yfirfærslu fjármuna, svo og almennt réttindum og
skyldum sem erlent verkafólk tekst á hendur við vistráðningu hérlendis. Ymis
önnur mikilsverð ákvæði er þarna að finna, og yfirleitt ættu kjör erlends
farandverkafólks að verða stórum betri þegar þessu verður hrundið í fram-
kvæmd. Enn stendur þó á verkalýðshreyfingunni i veigamiklum atriðum sem of
langt mál yrði að telja að sinni.
Það er stefna hópsins að nýta þessa nefnd til þess að safna sem mestum
Hugmyndina að þessari mynd fékk ég eftir heimsókn á verbúðir hjá ákveðnu frystihúsi í
Grindavík.
Nokkrir úr Baráttuhópi farandverkafólks, þar á mcöal ég, fóru til Grindavíkur að gera úttekt á
verbúðum þar. Á einni vcrbúðinni, þar sem við sátum og röbbuðum við ibúana, kom þar að
maður einn sem við nánari eftirgrennslan reyndist vera eigandi frystihússins. Við ræddum mikið
við hann og þar kom að því að hann lýsti því yfir blákalt, upp í opið geðið á fólkinu sem bjó þarna
og vann hjá honum og við okkur að þetta væri bara þriðja flokks fólk sem ynni þriðja flokks
vinnu, enda væri það í lélegu húsnæði.
165