Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Qupperneq 130
Tímarit Máls og menningar
undir stól heldur gera ágæti þeirra
heyrinkunnugt, a.m.k. koma til skila að
bækur viðkomandi séu á boðstólum.
Aftan á kápu er mynd af fríðleikspilti
sem við gætum best trúað að væri skáldið.
Gjarnan hefðu mátt fylgja upplýsingar
um hvenær hann er fæddur og hvaðan
hann kemur. Lesandinn sér svo um að
fylgjast með þvi hvert hann fer.
Pe'tur Gunnarsson.
AÐ VELJA SÉR FORTÍÐ
Það væri freistandi að bera nýju bókina
hennar Asu Sólveigar, Treg í taumi (Örn
og Örlygur, 1979), vandlega saman við
fyrstu skáldsögu hennar, Einkamál
Stefaníu (1978), en slíkt verður að gera á
öðrum vettvangi en í ritdómi. Þó má
fljótlega benda á líkindin með aðferð og
efni: Treg í taumi er fyrstu persónu frá-
saga í nútíð eins og Einkamál Stefaníu,
báðar segja söguhetjur frá örlagaríkum
tíma í lífi sínu og ljúka frásögninni á
örlagaríkri ákvörðun. Stefanía fylgir
eiginmanni sínum til útlanda gegn vilja
sínum, Guðný gengur út af heimili sinu
og skellir á eftir sér. Þær eru ekki ólíkar að
lundarfari þótt lífið hafi verið mildara við
Stefaníu en Guðnýju, báðar eru hrein-
skilnar, orðheppnar og skapmiklar, báðar
hafa samt látið beygja sig. Ef afleiðingar
þeirrar kúgunar verða þær sömu hjá
Stefantu og Guðnýju er framtíð Stefaníu
annað en björt.
Treg í taumi er sögð í nútíð og gerist í
nútímanum þótt nánast engin merki um
heim utan einkalífsins sjáist í sögunni —
engin tilvisun til stjórnmála, dægurmála
eða heimsmála, hljómsveitin Meat Loaf er
það eina sem nafngreint er af því tagi og
gæti tímasett söguna. En það þarf ekki ytri
atvik til, sagan skilar sér vel sem sam-
tímafrásögn.
Sagan gerist á tæpum tveim sólar-
hringum. Guðný, sögumaður og aðalper-
sóna, er 46 ára, gift forstjóra, þriggja barna
móðir og húsmóðir í einbýlishúsi. Þegar
sagan hefst eru þau hjón að fara út að
skemmta sér og nær öll bókin gerist það
kvöld og nótt með eftirleik tæpan sólar-
hring á eftir. Lesendur kynnast fjölskyldu
Guðnýjar, börnunum sem hún er búin að
týna nema helst því yngsta, stelpu á ferm-
ingaraldri, eiginmanninum Braga sem
ævinlega hefur rétt fyrir sér, máginum
Ævari sem Guðný hefur dáðst að en
reynist eigingjarn og ráðríkur eins og
bróðir hans. A dansleiknum fá lesendur
svipmyndir af fjölmörgu fólki, margar
skýrar og skemmtilegar, en gamla vin-
konan og starfsfélaginn Erla, fyrrverandi
eiginkona Ævars, skyggir á aðra eftir að
hún kemur fram á sjónarsviðið.
Erla er skýrasta dæmið um þá kvengerð
sem Guðný virðir og trúir á, sterk, til-
fmningaheit og sjálfstæð. Ef Stefania hefði
átt vinkonu á borð við Erlu hefði kannski
farið öðruvísi fyrir henni. Erla verður
Guðnýju mikil hjálp við að átta sig á hvað
er á seyði i lífi hennar, ekki síst með lifandi
frásögn sinni af því hvernig hún bjargaði
sjálfri sér. Guðný heldur að nýi eigin-
maðurinn hafi komið Erlu á réttan kjöl
eftir skilnaðinn við Ævar, en það var hún
sjálf sem gerði það:
.. . ég var niðurbrotin og dekraði mína
ástarsorg eins og langþráð ungbarn.
Það var skelfilegt ástand, mér fannst
252