Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1983, Page 40

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1983, Page 40
Tímarit Máls og menningar hlutverki en Danmörk sjálf. Þessi afstaða hefur gjörbreyst og nú eru öll þessi lönd talin með í umræðum friðarsamtakanna á Norðurlöndum um kjarnorkuvopnalaust svæði. SHA hafa lagt áherslu á það í samskiptum við friðarsamtök í Evrópu að Island yrði tekið með í kröfuna, en ekki skal fullyrt að það hafi skipt sköpum. Islendingar, einkum námsmenn í Osló, Kaupmannahöfn, Gautaborg og e.t.v. víðar, hafa verið ötulir talsmenn, og þingmenn Alþýðubandalags og Alþýðuflokks hafa lagt málinu lið. En máske hefur það skipt höfuðmáli að Norðmönnum er sjálfum orðið ljóst að stöðu þeirra svipar mjög til stöðu Islands og gildir það einkum um norskar stöðvar fyrir gagnkafbátahernað á Norður-Atlantshafi (9, 13) en einnig birgðastöðvar sem Norðmenn hafa nú komið upp fyrir Bandaríkjaher, þótt ekki sé um erlendan her að ræða á friðartímum. Þó að þessar stöðvar séu því ekki fyllilega sambærilegar við herstöðvar Bandaríkjanna hérlendis er orðið mjótt á mununum, eins og glöggt kemur fram í grein Olafs Ragnars Grímssonar í þessu tímariti 1981 (14). Eins og að ofan greinir eru friðarsamtök á Norðurlöndum, þar með talin SHA, að vinna að nánari útfærslu hugmyndarinnar um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd og skal hér drepið á helstu atriði sem hafa verið og eru raunar að nokkru enn til umræðu. 1) Tilgangur: A þetta ber að líta sem skref til kjarnorkuvopnalausrar Evrópu. Mikilvægasti ávinningurinn væri að draga úr spennu, vígbúnaði og hindra stríð. Kjarnorkuvopn eru skotmörk og með því að fjarlægja þau minnkar hættan á að löndin verði eydd í stríði. Hins vegar ber að forðast þá tálsýn að unnt sé að skapa sér öruggt skjól. Við hljótum þó að viður- kenna sjónarmið fólks sem vill leggja þessari baráttu lið útfrá þeirri forsendu að það vilji forða landi sínu frá því að verða skotmark í kjarnorku- styrjöld. 2) Mörk svtedisins: I umræðum um mörk svæðisins hefur verið ráðandi að vega og meta hvað sé æskilegt og hvað sé mögulegt, með það að leiðarljósi að því minna sem svæðið yrði þeim mun minna gildi hefði það útfrá öryggissjónarmiðum. Þeirri hugmynd að bæta við eins konar útþynningarsvæði utan Norður- landa, eins og m.a. var áberandi í umræðum Svía um áætlanir Kekkonens á sínum tíma, er hafnað. Meðal annars hefur verið bent á að meginhluti vígbúnaðar Sovétríkjanna á Kolaskaga og í Eystrasaltslöndum séu strategísk kjarnorkuvopn og þeim sé beint gegn tilsvarandi vopnum sem eru ekki staðsett á Norðurlöndum. Hins vegar er bent á að í viðbótarákvæðum mætti semja um skammdrægar eldflaugar á Leningradsvæðinu og sunnan við Murmansk sem beint er gegn Norðurlöndum. Þess má geta að Bresjneff lét í það skína í fyrra að e-ð slíkt kæmi til greina af hálfu Sovétríkjanna. 30 \
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.