Tímarit Máls og menningar - 01.02.1983, Síða 45
Kristín Astgeirsdóttir
Við erum öll ábyrg
Fridarhreyfingin og Helen Caldicott
Á hverjum degi er varið um 15 milljörðum króna til hernaðar í heiminum.
Um hálf milljón vísindamanna, eða 40% allra er fást við vísindi vinna í þágu
hernaðar. Þeir hafa skapað vopn sem duga til að sprengja hinn óskilgreinda
óvin 40 sinnum í loft upp. En vísindamönnum og valdhöfum hefur ekki tekist
að tryggja meginþorra mannkyns mannsæmandi líf, hvorki mat, húsnæði,
góða heilsu, menntun, vinnu né öryggi.
(Kvinder for fred, Danmörku)
Innan friðarhreyfingarinnar er fólk með mismunandi skoðanir og skilning.
Allir eiga það þó sameiginlegt að óttast um framtíð barna sinna og framtíð
mannkynsins. Allir eru sammála um að mannkynið þeysi breiða veginn til
Heljar, með bilaðar bremsur og atómbombur í skottinu, sem springa á
endastöðinni, verði ekki eitthvað að gert. Þetta EITTHVAÐ er ekkert
smáræði, hvorki meira né minna en það að koma vitinu fyrir stjórnmála-
menn heimsins, stöðva vígbúnaðarkapphlaupið, hefja afvopnun og síðast en
ekki síst að draga úr þeim miklu mótsögnum fátæktar og ríkidæmis sem
einkenna mannlífið hér á jörð. Heimurinn kallar á nýja pólitík, nýtt
gildismat, sem gengur út frá lífsstefnu í stað þeirrar helstefnu sem nú ræður
ríkjum.
Hvernig á að stöðva hraðferðina til Heljar? Því er vandsvarað með vissu,
en eina leiðin virðist vera sú að milljónir og aftur milljónir manna mótmæli
og knýi á um breytta stefnu. Sumir vilja virkja óttann sem býr í brjóstum
svo margra, friðarhreyfingunni til framdráttar. Samtökin Kvinder for fred á
Norðurlöndunum segja að við þurfum ekki að vera sérfræðingar í afleiðing-
um geislavirkni, eða þekkja mun á langdrægum og meðaldrægum eldflaug-
um til að taka þátt í friðarbaráttunni, okkur nægi að þekkja muninn á lífi og
dauða, skynsemin muni fá fólk út á göturnar. Aðrir trúa á mátt upp-
lýsinganna og segja sem svo að ef fólk bara vissi hvílík hætta mannkyninu
og reyndar öllu lífi stafar af kjarnorkunni og kjarnorkuvopnunum, myndi
það rísa upp og stöðva vitfirringuna.
Það er ekki í anda friðarhreyfinga að benda á einstaklinga sem skara fram
úr í umræðum þeim um friðar- og afvopnunarmál sem staðið hafa undanfar-
in 3 ár. Þar hafa margir lagt hönd á plóginn svo að takast mætti að bylta
35