Tímarit Máls og menningar - 01.02.1983, Blaðsíða 57
Hringsól um braggahverfib
— Já ég fékk brons í kringlunni.
— Brons? Hver vann?
— Einhver ballettdansari. Getur ekkert. En kúlan er eftir.
— Helduraðú vinnir?
— Vinni! Hah! Hahah! Komiði þarna á eftir og ég skal sýnykkur
hvernig á að setja heimsmet!
— Nau, nau, heinnsmet ma-ur!
— Jæja strákar, látiði mig fá Vísi, þú skrifar hann hjá mér Grjóni.
Undir vegg gömlu vörugeymslunnar lágu garðyrkjumenn og
verkakallar sem voru að vinna við lóðina hjá Rafmagnsveitublokk-
inni, Grjóni seldi þeim fjögur blöð. Svo komu þeir við hjá
mjólkurbúðinni og seldu nokkur blöð í viðbót.
Þeir litu inn í Tommabúð þarsem Tommi gamli var að sortera
appelsínur og í skínandi skapi enda svaka stuð á finnsku
harmonikkusnillingunum í útvarpinu. Þeir létu hann fá blaðið og
sýndu honum myndina af Hreggviði.
— Heldurðu að hann vinni kúluna pabbi?
— Hann ætti ekki að vera í vandræðum með það Baddi minn,
hann er eini keppandinn! hehe. Tæja piltar, hérna fáið þið fimmkall
fyrir blaðið!
Fimmkall fyrir blaðið, af því tilefni hlupu þeir aftur út í mjólkur-
búð og keyptu sér pinnaís. Þeir héngu frammá afgreiðsluborðið
meðan þeir átu ísinn og spjölluðu við afgreiðslukonurnar, það voru
tvær varalitaðar stelpur á táningsaldri með hárlagningu og naglalakk,
þær léttklæmdust við strákana og töluðu við þá einsog óreynd
smábörn en þeir urðu ægilega stórir og bráðir og kölluðu þær píkur
og klobba og gerðu brjóst brjóst læri læri tækifæri og þær hlógu og
flissuðu og hristu hausana yfirsig hneykslaðar á talsmáta unglinganna
nútildags og önnur þeirra var úr sveit og spurði, — hvernig er það
strákar, eruð þið komnir með hvolpavit?
Húsmæður úr blokkunum sem komu eftir mjólk keyptu nokkur
blöð af Grjóna sem var orðinn svo hlaðinn af gylltum krónupening-
um að hann klingdi í hverju spori. Hann taldi blöðin í pokanum
þegar hann kom út og það voru 36 eftir, hann sem átti að bera út 43.
★
47