Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1983, Page 65

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1983, Page 65
Hringsól um braggahverfið fífli. Tommi kvaddi og fór aftur niðrí búð að sortera appelsínur og hlusta á finnska harmonikkusnillinginn Hakkaralænen og rólegheitin á vellinum voru slík að allir keyftu Vísi af Grjóna einsog ekkert væri, meira að segja nefndarformaðurinn sem var svo handlama eftir bitið að hann þurfti á hjálp að halda við að ná krónu uppúr jakkavasanum. ★ Svo fór Hreggviður út í kasthringinn, gerði sig grimmdarlegan á svipinn og hnoðaði kúluna í lúkunum. Hann var búinn að lofa strákunum heimsmeti. Hann stóð kyrr í hringnum, steig fram á vinstri fótinn og með hægrihandarsveiflu grýtti hann kúlunni í átt til fánans. Það voru ekki stælar og tilburðir í Hreggviði, ekkert með að setja kúluna undir kjálkann og hoppa og snúast, heldur var einsog hann stæði í fjöruborði og kastaði steinum í öldurnar. Kúlan lenti með dynkjum langt fyrir aftan fánana. Rúmir fimmtán metrar. Með illilegri grettu steig kappinn fram úr hringnum til að gera kastið ógilt. Hann kinkaði kolli til strákanna og náði í kúluna. Svo gekk hann með hana í risavaxinni lúkunni hálfhring um völlinn, staðnæmdist um stund hjá fylliröftunum, gaf þeim öllum sígarettur úr Pall Mall-pakka sem hann dró uppúr brjóstvasanum, að launum fékk hann langan stóran slurk úr sprittglasi. Svo var hann aftur kominn í kasthringinn, hann horfði hatursaugnaráði á fánana tvo, svo grýtti hann kúlunni með bjarndýrsöskri. En alltof stutt. Nú átti hann eitt kast eftir. Kallarnir stungu saman nefjum, — nú er minn maður orðinn reiður, þá er hann bestur, síðasta kastið hans er alltaf lengst. — Hreggi gæti verið orðinn norðurlandameistari ef það væri ekki alltaf þessi óregla á honum. — Og svo er hann náttúrlega öryrki maðurinn, sagði einhver í tvíræðum tón og allir glottu kindarlega. Hreggviður þrammaði þungbúinn um völlinn og vóg kúluna í höndum sér. Honum dvaldist um stund við blámálaðan skúr sem var við vallarendann, skúrinn gegndi í senn hlutverki áhaldageymslu, búningsklefa og félagsheimilis knattspyrnufélagsins Kára. — Nú er hann að fá sér brjóstbirtu, eitthvað hjartastyrkjandi, sögðu kallarnir og gáfu hverjir öðrum olbogaskot meðan Hreggviður snuddaði eitthvað við skúrdyrnar. Svo gekk kappinn hröðum skref- 55
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.