Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1983, Side 108

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1983, Side 108
Tímarit Máls og menningar díalektík sem hlýtur að lykta með því að við viðurkennum skáldskapinn sem hluta af veruleika okkar. f*að er í umfjöllun um tengsl skáldskapar og veruleika sem póstmódernisminn hefur verið hvað frumlegastur og sum athyglisverðustu verk hans hafa þessi tengsl að burðarási frásagnar; má til dæmis benda á Pale Fire eftir Nabokov. — Þegar vel tekst til í slíkum sögum myndast nýtt samband við lesandann; um leið og hann fylgist með sögunni verða til „innan frá“, tekur hann sjálfur virkan þátt í að skapa hana. Við lestur / sama klefa mun lesandi jafnframt uppgötva að í þessari nýstárlegu sögu er hann e.t.v. að fást við frummynd epískra bókmennta, hina munnlegu frásögn, ein mannvera segir annarri frá. Sáraeinföld mannleg samskipti en þó svo flókin og kannski sjaldan hugleidd nú á tímum. Jakobínu hefur oft verið hrósað sem snillingi að lýsa hugrenn- ingum persóna sinna, en ástæða er til að minna á að líklega er samtalið sá hluti prósaritunar sem Jakobína hefur ræktað umfram aðra íslenska höfunda. Ekki aðeins er Snaran öll annar helmingur samtals, heldur eru heilu kaflarnir í Lifandi vatninu-----látlaus samtöl. / sama klefa er öll byggð í kringum og í framhaldi af samtali Sölu og sögukonu. Þó skal minnt á að sögukona er ekki fær um að hafa samtalið orðrétt eftir, heldur endurskapar hún það eftir minni. Þannig bendir sagan á önnur tengsi skáldskapar og veruleika, nefnilega hið skáldlega eðli tungumálsins. Um leið og við erum farin að túlka veruleika okkar með orðum erum við orðin „skáld“, við semjum liðið líf okkar, mótum atburði, samtöl og hugmyndir í afurðir hugsananna, orðin sem við mælum eða skrifum. Þannig má benda á að um leið og bók Jakobínu verður „innhverf“ saga, leggur hún margsháttar áherslu á mikilvægi skáldskapar og bók- mennta. Skiljanlegt er að á okkar tímum velti skáldverk fyrir sér eigin tilvist og tilgangi. Staða alvarlegra bókmennta sem ætla sér að túlka að einhverju leyti heimsmynd nútímans virðist vera æ tvísýnni og í mörg- um löndum hins vestræna heims sýnast þær á góðri leið með að lokast inni í musteri akademíunnar. Með því að velta fyrir sér eigin tilvist geta sögur jafnframt spurt okkur ögrandi spurninga um tilverugrundvöll bókmennta: um tjáninguna sem og um fagurfræðilegt og hugmynda- fræðilegt framlag til mannlegs lífs. Hvað hafa rithöfundar að segja fólki í dag? Hvað er „Marktækt Hugverk"? Til hvers eru skáld, í heimi þar sem svo ótal margt virðist gert til að kæfa listþörfina? Til hvers að veita þeim „stóran víxil hjá Ríkinu?“ (5) Og svo er það lesenda að svara. 98
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.