Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1983, Page 124

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1983, Page 124
Umsagnir um bækur VEGURINN TIL SUNNUHLÍÐAR Er það ekki dálítið nöturlegur vitnis- burður um andlegt ásigkomulag ís- lendinga síðustu árin, hvað ljóðskáldin okkar eldast illa? Þau sem ung vöktu miklar vonir, og unnu jafnvel afrek, eru á miðjum aldri ýmist þornuð eða komin með list sína í hnút og herping. Og þau yngstu, þau sem fram hafa komið síð- ustu 10—15 árin, eldast hvorki vel né illa, þau eldast alls ekki og minna einna helst á rósirnar sem reyndu að halda þokka sínum með því að springa ekki út. Hér er ekki rúm til að leita svara við stórspurningum. Hér verður því aðeins haldið fram án teljandi rökstuðnings, að módernisminn svokallaði hafi ekki reynst eins frjór og ætla mátti. Ekki módernisminn sem formbreyting — hér- eftir mun ekkert sæmilega heiðarlegt skáld láta brageyrað yrkja fyrir sig — heldur módernisminn sem lífsafstaða og aðferð til að skynja veruleikann. Steinn Steinarr, fyrsti módernistinn sem eitt- hvað kveður að, ber enn höfuð og herð- ar yfir þau skáld sem fylgdu á eftir hon- um. Og sé í dag hægt að tala um avant- garde í íslenskri ljóðlist, þá eru það — það veit guð — Snorri Hjartarson og Hannes Pétursson sem ekki verða sagðir módernistar nema hugtakið sé teygt og togað meira en venja er til. Steinn Steinarr hafði þrek til að etja angist sinni á vesöld tímans og hæfileika til að umbreyta sársauka fundarins í ljóð sem sögðu meira en minnisverð tíðindi af þjáðum manni. En honum tókst hvorki að brjótast útúr angist sinni né finna henni önnur viðmið en þau áreiti tímans sem best voru til þess fallin að vekja hana. Þetta gerir lífsskynjun hans og ljóðlist eintóna í styrk sínum. Þau skáld sem á eftir komu, svonefnd atómskáld (sem auðvitað voru fleiri en fimm), tókust á við samtímann af meiri og jákvæðari skilningi en Steinn, en þau hörfuðu með kenndir sínar inní einka- landið, eða persónuhulstrið, sem er helsti samgrunnur alls þessa sem kennt er við módernisma; þar er jafn auðvelt að vera áhorfandi og það er erfitt að vera þátttakandi. Eftir stendur ljóðlist sem er hugvitssamleg og smekkvís, umfram allt fjarska greindarleg, en aldrei mjög áleitin. Yngsta kynslóðin hefur svo gengið enn lengra í takmörkun skynjunarinnar. Hjá henni er það aðeins lítill hluti sjálfs- verunnar sem reynir í einangrun sinni að bregðast við einhverju broti tilverunnar einsog það væri hún öll. Utkoman er í höfuðatriðum þrennskonar flótti. I fyrsta lagi er vandanum að vera til snúið uppí ævintýrið að vera til sem firrtur einstaklingur í skemmtilega brjáluðum heimi; breitt er yfir angistina með húm- or og huggulegheitum; hér er sjarminn allur á yfirborðinu og ekkert undir þrátt fyrir einstaka virðingarverða tilraun til einlægni innan þessa þrönga ramma. I 114
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.