Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Page 7
Yfirlit yfir
framgang portúgalskrar
nútímaljóðagerðar
I þessu yfirliti um framgang nútímaljóðlistar í Portúgal leyfi ég mér að éta
upp eftir öðrum að hún hafi hafist með hinum svonefnda saudosismo,' þeirri
angurstefnu sem kennd er við ljóðskáldið Teixeira de Pascoais (1877— 1950).
Angurværðin er hugarástand sem er hins vegar talið vera einkennandi fyrir
portúgalska þjóðarsál, hún er óljós þrá eftir einhverju þekktu eða óþekktu
og tengd missi. Ef til vill var hún undirrót siglinga portúgala á tímum
landafundanna, ástæðan fyrir ásókn þeirra á hafið og nýlendustefnu þeirra
og hvað þeir gerast gjarna útflytjendur og hvernig þeir hafa þolað einræði
áratugum saman, með angri og værð. En stefnan sem bókmenntalegt
fyrirbrigði er með ýmsum hætti síðbúin evrópsk rómantík og leifar af
hinum andlegu hræringum sem fylgdu í kjölfar hennar, svo sem nýklassíkin,
ungmennafélagsandinn, fríkirkjustefnan og andatrúin. I öllu þessu leynist
angi af þjóðerniskennd og eldmóði, upphafningu fortíðarinnar og fasisma. I
listum er þráin ekki raunveruleg heldur ósönn og í listrænum tælandi
búningi. Hún er flúruð og færð í litríka og leikræna kvöl. Þetta er fagurfræði
blönduð dulhyggju.
Með tæknibrögðum listarinnar og innihaldi og hljómi orðanna rótar
skáldið upp móðurmoldinni við rætur þjóðlífsins, í fortíð sögunnar, og
hefur upp fund sinn móti sólarlaginu eða árroðanum. Skáldin gera þetta
ýmist, og stjórnmálamenn líka, eftir því hvort hinn andlegi magi þeirra er
orðinn mettur og þarfnast þess að breyta um fæðu. Fæðan verður þá
gagnstæð hinni sem fyrir var í stjórnmála- eða listamaganum, í lokin. En þó
er nærst á blandaðri fæðu eitthvert stutt skeið eftir byltingarnar.
Innsæi hefur skipt meira máli í portúgalskri ljóðlist en hlutlaus íhugun
eða hróp vígorða. Skáldin, sem koma úr stétt menntafólks, eru öguð í
hugsun og byggja á hefðum — hugsunin er þá byltingargjörn, samkvæm
latneskum anda — en framlag eðlis sjálfra þeirra er að lifa sig inn í atburðina
og gæða þá ljóðrænum tón og kliðmjúkum blæ.
1 saudade er illþýðanlegt orð en er nátengt trega, angurværð, söknuði eða jafnvel sefasýki.
477