Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Side 31

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Side 31
Herberto Helder HERBERTO HELDER, fæddur 1930 í Funchal á Madeira, er afar audugt skáld, í sínum ljóðadansi fylgir hann á ýmsan hátt stefnu og danssporum súrrealistanna, að því leyti að ljóðmál hans er rofið stöðugt og óvænt, bæði hljómfall þess, hrynjandi, með innskotsmyndum í ljóðlínuna. Bragurinn verður áþekkur ósjálfráðum við- brögðum, en hann er auðvitað sprottinn af listvilja, því þessi tækni er síst í ósamræmi við eðli ljóðlistarinnar. Vegna þess að aldrei er notað í ljóðum svo nefnt eðlilegt mál, hvernig sem skáldin reyna að færa Ijóðmálið að máli „götunnar" og að hversdagsleikanum og hugsun hans. Með hinum óvæntu innskotum tekst Helder að þjappa efninu og hljómnum saman, en slík aðferð hefur tilhneigingu til að bregðast ef notuð er eðlileg eða rétt setningaskipun málfræðinnar. Ljóðagerð á ekkert skylt við málfræði eða „rétt“ mál, hún er upphafning hins ranga og djúpa og stílfærða. I meðförum Helders verður málið að orðaþyrpingum og hrynjandin áþekk því að bumbur séu barðar inni í margræðu myrkri. Helder hefur ort á svo nefndu rafeindaljóðmáli, það er ljóðaháttur sem er að einhverju Ieyti svipaður rafeindastreymi, en skáldið tekur tillit til hins leikræna gildis orðanna. Samkvæmt eðli sínu leika orðin í því leikriti sem við köllum ljóð, það er hugarleikrit ljóðskáldsins. Eða orðið leikur hreinlega í leikriti málsins eða felum tungunnar sjálfrar sem er þá leyst úr viðjum þeirra reglna sem málfræðin setur því. Bókstafirnir eru leikarar sem leika hlutverk sitt í orðunum, setningunum, köflun- um: í heild verksins. Stafirnir ávarpa stafina, svara öðrum bókstöfum, stundum með stöðu sinni án beinnar vitsmunalegrar merkingar, þannig renna listirnar saman í hrynjandi atburða sem skáldið ýmist stjórnar eða leyfir að leika frjálsum að vild sinni. Helder bjó lengi í Afríku og ljóðhljómur hans er að miklu leyti runninn þaðan, og að sjálfsögðu úr fórum hinnar portúgölsku tungu. Kvæðið Konur hlaupa, stökkva í nóttinni er frumskógur orða. Leynd lífsorkunn- ar þýtur þar í laufi, í limum, í dansi kvennanna — ljóðlistarinnar — en líkamar beggja eru ljóðstafir, ljóðlínur og Ljóða-ljóða-leikur líkamans. Konur hlaupa, stökkva í nóttinni Konur hlaupa, stökkva í nóttinni. Það hvín í konum sem hlaupa, í minningunni, á stökki líkar opnum merum, áþekkar ljúfum þyt magnólíu á hlaupum. 501
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.