Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Side 62

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Side 62
Tímarit Máls og menningar Saint-Chamans drúpti höfði og andvarpaði þungt: Svo girnilegum að hermennirnir svöluðu fýsnum sínum á líkinu. CARLOS MALHEIRO DIAS (1875—1941). Samfara hverri þjóðernishyggju er vottur af rómantík og sögustefnu, í formi sögulegra skáldsagna og þá oftast um hina miklu karla fortíðarinnar sem voru, að sjálfsögðu, talsvert breysklegir, grimmir og einnig fyrir það að aflífa fólk í nafni föðurlandsins og laganna og réttlætisins. I þokkabót voru þeir svo djarfir til kvenna að í lokin fór léttlynd drós með karl- mennsku þeirra og völd niður í kjallara þjóðfélagsins. Og tignin endaði með því að hin ómennska kona sveik þá í andarslitrunum, þegar hún komst að því að þeir áttu ekki einu sinni eftir krónu í smáu. Þetta er afar vinsæl lesning. Vegna þess að til er slíkur sægur af væntanlegum stórmennum sögunnar og atvinnulifsins, sem hefur í huga að læra af reynslunni og giftast traustum konum sem eru fyrir glingur, hæfilegar barneignir og áhuga á að standa fyrir veislum líkt og framreiðslustúlkur. Carlos M. Dias skrifaði um stórmenni sögunnar, í hæfilega táknrænum stíl, og voru þau oftast alþekkt en ekki ævintýrapersónur. Samt var hann svo mátulega raunsær í framsetningu efnisins að lesandinn gat verið einfær um að blekkja sig án samviskubits og trúað sögufölsununum og hafist upp til skýjanna í ást á ættjörðinni, þegar best lét, eða langaði til að ganga í gröfina með köppunum. Skáldið Dias saknaði hinna stórbrotnu tíma portúgalskrar sögu, og bjó þá í sagnabúning, líkt og í sögunni um Conde de Sabugosa (Greifann af Sabugosa) Donas dos tempos idos (Frúr liðinna tíma). Og að sjálfsögðu skrifaði hann um Pedro og Ines, þá ástarsögu sem portúgalar hafa ekki enn jafnað sig eftir, þótt liðnar séu margar aldir frá andláti elskendanna. Dias samdi líka ágæt verk fyrir leiksvið. Leikararnir komast enn í ham á sviðinu þegar þeir leika O Infante de Sagres (Konungssonurinn af Sagres) og Egas Moniz. Skáldið lauk ævinni sem sendiherra lands síns í Madrid, elskaður og virtur af Salazar og hetjuliðinu kringum hann. Sagan er hér birt til að benda á hinn ríka þátt í portúgölskum bókmenntum sem þjóðernisstefnan fléttaði, sú sem kom á nýja einveldinu, eftir byltinguna 1910. I sögunni er augljós hæfileiki Dias til að bregða upp litríkum myndum, vissum glæsibrag, vekja þjóðerniskennd í brjósti lesendanna, ekki með því að draga úr hæfileikum innrásarherja Napóleons, heldur þvert á móti sýna fram á þá. Til þess að geta síðan í lokin bent á að hinn frumstæði vilji portúgölsku þjóðarinnar hafi unnið á allri dýrðinni, með meðfæddum slóttskap, og lýst konum sem kitla leyndar hvatir ástríðnanna í lesandanum, og að endingu fá kynhvatirnar útrás í „hroðalegum lýsingum" sem minna lesandann á unaðslegar athafnir og að hetjuþjóð verði ekki nauðgað nema sem líki. 532
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.