Tímarit Máls og menningar - 01.02.1985, Page 23
Dyggðir og lestir
margrómuð hlutlægni í frásagnarhætti sagnanna felur það í sér að höfundar
kveða örsjaldan upp dóma í eigin nafni, aðeins stöku sinnum í nafni
almennings á sögutímanum og segja eitthvað á borð við: mæltust þau verk
vel/illa fyrir. Jafnvel maður eins og Sigurður Nordal, sem auðvitað var
þaulvanur að skoða og ræða þessa frásagnarlist sagnanna, hann lét hana samt
blekkja sig. Hann segir að Þorbjörn bóndi verði aldrei broslegur í Hrafnkels
sögu. I sögunni segir að Þorbjörn hafi grátið þegar hann kom máli sínu ekki
fram á alþingi.20 Sigurður hefur sýnilega ekki hugsað út í hvað það er mikið
komið undir afstöðu hans sjálfs hvort honum finnst hugmyndin um þennan
grátandi karl brosleg eða ekki.
Ein leiðin til að nálgast viðfangsefnið, og sú eina sem ég ætla að fara hér,
er að spyrja hvers konar siðamati má búast við í þjóðfélagi eins og því
íslenska á 13. öld. Flestir fræðimenn sem hafa skrifað um þetta efni virðast
gera ráð fyrir því að siðfræði sé eitthvað sem fólk læri með trúarbrögðum og
skili svo áfram til næstu kynslóðar meðan sama trú helst í landi. Sé málið
sett þannig upp er aðeins rúm fyrir ágreining um hve langan tíma það tók
Islendinga að læra kristna siðfræði. Höfðu þeir lært hana þegar þeir
skrifuðu Islendingasögurnar eða héldu þeir sig enn við heiðna siðfræði?
Þetta er bersýnilega viðhorf Hermanns Pálssonar. I lok einhvers nýjasta rits
síns um þessi efni segir hann að það sé „engan veginn einfalt að skera úr því,
hvort tiltekin hugmynd sé af fornum norrænum rótum runnin, ella þá
árangur af útlendum lærdómi.“21 Bjarni Guðnason og Davíð Erlingsson fara
í meginatriðum sömu leið, bæta aðeins við þriðja flokknum, sam-mannlegri
siðfræði. Hún er, með orðum Bjarna Guðnasonar, „almenn, hagnýt lífs-
vizka, sem ekki er bundin einu siðakerfi fremur en öðru.“22 Davíð gengur
umyrðalaust út frá þrígreiningu hugmynda:23 „Det ár sálunda bl. a. vansk-
ligt att skilja mellan kristet och hedniskt och det som kan vara allmánmánsk-
ligt.“ I augum þeirra lítur því flokkun hugmyndaheimsins út eitthvað þessu
líkt:
13