Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1985, Page 101

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1985, Page 101
Ghepur og refsing völlur samfélagsins er farinn að bila“.13 Róttæklingar tímans brugðust að sínu leyti flestir reiðir við sögunni. Gott dæmi er gagnrýnandinn G. Z. Eliséef. I tímaritinu Sovrémennik, höfuðvirki rússneskrar róttækni í þann tíma, bar hann Dostoévskí það á brýn, að hann færi með róg og níð um æskumenn samtímans, með því að láta að því liggja, að kenning Raskolnik- ofs um rétt til glæps væri dæmigerð fyrir unga stúdenta, að þetta væru „ofurvenjuleg samtöl og hugsanir ungra manna, sem hann hefði heyrt margsinnis". Gott dæmi um reiði Eliséefs eru þessi ummæli hér: Menn sjá fyrir sér hetju sem er gripin einhverri ástríðu, rithöfundurinn situr og rembist og beitir öllum kröftum til að lýsa dýpt og breidd þessarar ástríðu. Arangurinn er eitthvað barnalegt, hæfileikasnautt, vatnsósa og mælskuþrútið og sýnir ekki aðeins skort höfundarins á athyglisgáfu, heldur og takmarkanir listrænnar aðferðar hans og reynslu í að lýsa ástríðunni — veldur þetta skelfilegum leiðindum og skýrir alls ekki skapgerð persónunnar.14 Annar og þekktari gagnrýnandi úr hópi róttæklinga, Písaréf, valdi aðra leið. I tímaritinu Délo birti hann grein um Glæp og refsingu sem hann nefndi „Lífsbaráttan“. Sjálf fyrirsögn greinarinnar segir sína sögu. Helsta kenning Písaréfs er sú, að ástæðuna fyrir því að Raskolnikof fremur glæp sinn sé að finna í þeirri neyð sem bannar honum allar bjargir. Hann leggur fyrst og síðast áherslu á félagslegar forsendur hegðunar söguhetjunnar. Písaréf segir, að sjálf kenningin um æðri menn og lægri og rétt mikilmenna til glæps sé óvísindaleg og reyndar fáránleg og gerir sitt besta til að sýna fram á að hún sé um margt í andstöðu við hugmyndir róttækra manna. Písaréf segir meðal annars:15 Þessa kenningu er ekki með nokkru móti hægt að telja forsendu glæpsins — ekki frekar en hægt er að telja ofsjónir sjúklings ástæðuna fyrir sjúkdómi hans. Þessi kenning er aðeins formið sem veiklun og afskræming andlegra hæfileika Raskolnik- ofs tóku á sig. Hún er blátt áfram afurð þeirra erfiðu aðstæðna, sem Raskolnikof var neyddur til að berjast við og lögðu hann í lamasess. Einu raunverulegu ástæðuna er að finna í hinum þungbæru aðstæðum. I Sovétríkjunum hafa menn borið lof á Písaréf fyrir að hafa dregið fram félagslegar forsendur athafna Raskolnikofs („verund ákvarðar vitund“ segir Karl Marx). Þá er sagt sem svo, að Písaréf einfaldi að vísu málin um of, en hann hafi lagt áherslu á atriði sem íhaldið, Strakhof og fleiri slíkir, létu sér sjást yfir — af ásettu ráði. Sovésk bókmenntarýni hefur reyndar tekið þann kost yfirleitt þegar fjallað er um Dostoévskí, að feta í fótspor Písaréfs, enda á svo að heita að hann hafi verið einn þeirra sem bjuggu í haginn fyrir 91
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.