Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Blaðsíða 94
er Fróði í Snorra-Eddu og sá sem nefndur er á einum stað í Bjólfskviðu. Þau
tengsl duga þó varla til að útskýra nafngjöf Fróða. Friðarviðleitni Fróða í
Hobbtúni (Hobbiton) er algjört aukaatriði í sögunni auk þess sem hvorki sá
kafli né sá um viðskipti þeirra Gollums var svo mikið sem til í drögum þegar
Fróði fékk nafn.
Miklu vænlegra er því að leita til Fróða í Gróttasöng en sá Fróði er ekki
hliðstæða Hobbitans Fróða heldur andstæða. Fróði í Hringadróttinssögu fer
um langan veg til að hafna valdi og kasta hringnum, undirstöðu valds síns,
frá sér. Sú afneitun vegur upp á móti gullgræðgi Frið-Fróða. Auður og gull
eru engin trygging fyrir friði. Frið-Fróði ferst vegna gullsins og græðgi sinnar
í það. Fróði í Hringadróttinssögu bjargast hins vegar einmitt vegna þess að
hann girnist ekki hringinn. Þvert á móti heldur hann í miðju ríkis óvinarins
til að skila hringnum auk þess sem hann reynir nokkrum sinnum á leiðinni
að fela öðrum hringinn. Þess vegna nær hringurinn ekki sömu tökum á
honum og á Gollum — enda þótt allt snúist við á seinustu stundu og Gollum
sjálfur verði til þess að hringurinn eyðist. Kjarni málsins er eigi að síður sá
að Frið-Fróði lætur gullið stjórna sér og ferst. Fróði Baggi berst gegn því og
bjargast.
Efnisleg tengsl Gróttasöngs og Hringadróttinssögu eru þannig fólgin í
andstæðu en ekki í hliðstæðu. Fróði Baggi endurreisir Fróðanafnið með því
að bæta fyrir misgjörðir nafna síns og réttir um leið veg hans. Svo einkenni-
lega vill til að í Gróttasöng er forspá um hefnd fyrir Fróða konung sem er
hliðstæð leiðréttingu Fróða hobbita. í 22. vísu kvæðisins segir að Hrólfur
kraki („niður Hálfdanar og bur og bróðir Yrsu“) muni hefna Fróða. En sögn
um slíka hefnd er ekki til. Einu tengsl Fróða og Hrólfs eru að sagnir af þeim
báðum eru notaðar í gullkenningum í dróttkvæðum. Gull heitir Fróða mjöl,
meldur fáglýjaðra þýja hans, sáð Kraka og Fýrisvalla fræ. Vera má að hefnd
Hrólfs kraka hafi verið fólgin í meðferð hans á gullinu sem hann stráir á
Fýrisvelli og færir sér gullgræðgi Svíakonungs í nyt til að komast undan. Sigur
Hrólfs á gullgræðginni er á sinn hátt hefnd fyrir Fróða sem lét gullið verða
bölvun sína, rétt eins og míþrílmálmurinn í Moria varð dvergunum að falli
í Hringadróttinssögu.
Þræðir Hringadróttinssögu liggja víða. Þessi mikla bók tengist íslenskum
fornmenntum traustum böndum en Tolkien færir sér eyðurnar í vitneskju
okkar um fortíðina í nyt og á ferðalagi sínu um fortíð og nútíð býr hann til
úr þeim mikla skáldsögu sem jafnast fýllilega á við bestu skáldsögur þessarar
aldar. Um leið hefur hann gefið okkur nýjan heim sem endalaust má velta
fyrir sér, kanna, endurskoða og spegla sig í. Betur verður hlutverki mann-
legrar fræðastarfsemi ekki sinnt.
92
TMM 1994:3