Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1994, Blaðsíða 40

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1994, Blaðsíða 40
Segja má að ættjarðarljóðið hafi lokið lifandi hlutverki sínu í endurreisn þjóðarinnar þegar fjallkonan steig út úr ljóðinu og inn í mannlegt samfélag. Þegar huldukonan í hamrinum varð að dauðlegri mey var frelsisdraumur skáldsins orðinn að veruleika og skáldlegrar líkingar ættjarðarljóðsins ekki lengur þörf. Hin kvenlega fósturjörð breyttist í dauðlega, snertanlega, ís- lenska konu í skautbúningi. Á þeirri stundu hafði frelsismarkinu verið náð; og fjallkonan verið hamin. Það er rökrétt að þessi stökkbreyting skuli fyrst hafa átt sér stað í byggðum íslendinga í Vesturheimi, sem reyndu að muna fósturjörðina er horfin var sjónum þeirra. En borgarmenning hins nýja íslands þurfti líka að muna þessa upphöfnu mynd og hylla fjöllin og sveitina á hátíðarstundum. f leikgerð íslenska lýðveldisins lofar fjallkonan sjálfa sig með sérkennilegum — jafnvel óviðurkvæmilegum — hætti. Lofsöngurinn orðinn að sjálfshóli. En örlítið sjálfshól er stundum nauðsynlegt til að herða trú hins veika og minnimáttar á tilverurétt sinn, og getur jafnvel falið í sér einhvern sannleiks- brodd. Ættjarðarljóðin varðveita í sér einlæga drauma fslendinga um betra líf í þessu hrjóstruga, einangraða landi. Þau reka áróður fyrir samstöðu og sjálfstæðisþrá, boða gagnrýnislausa trú á ágæti lands og þjóðar. En þau eru ekki bara snyrtilegar umbúðir utan um fallega glansmynd af sígrænum sumardegi, því undir niðri leynist sannur kjarni sem snertir vitund okkar. Þennan kjarna skynjum við kannski þegar við lítum, eins og Bjartur og sauðkindin, til jökla á fögrum haustdegi, erum alein með landinu og finnum okkur: ... [upphafm] yfir hinn smámunalega hversdagsleik bygðanna og [lifum] í þeirri undursamlegu frelsisvitund sem við ekkert er líkjandi, nema ef vera skyldi við ættjarðarást sauðkindarinnar sjálfrar, sem deya mundi á fjöllum sínum, væri henni ekki smalað til bygða með hundum. Þetta erindi var flutt á Lýðveldisdagskrá Háskóla íslands (Háskóli íslands og íslenska lýðveldið) 19. júní 1994 og birtist hér í nœr óbreyttri mynd.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.