Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1994, Page 52

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1994, Page 52
Sumar þjóðir voru semsagt rétthærri en aðrar — vegna ríkjandi skilnings á því hvað framfarir væru. Sumar þjóðir voru taldar of smáar og vanmáttugar til að eiga líf framundan. Af þessu má segja ótal dæmi. John Stuart Mill taldi engan vafa á því að það væri best fyrir Walesbúa Bretlands og Bretóna Frakklands að gefa upp á bátinn alla þjóðlega sérvisku og njóta þeim mun betur allra „fríðinda“ sem fylgdu því að vera breskur og franskur þegn í stað þess að: „híma með ólund á sínum klettum eins og hálfvilltar effirlegukindur liðinna tíma og snúast þar á sinni litlu andlegu braut án þátttöku í eða áhuga á allsherjar framvindu heimsins“ Þessi heimspekingur (sem talaði nákvæmlega eins og talað er núna við íslenska og norska efasemdamenn um ágæti þeirra „fríðinda" að ganga inn í Evrópusambandið) á sér marga skoðanabræður. Kautsky, sá þekkti höfðingi sósíaldemókrata, Tékki að uppruna, sagði til dæmis: „Notkun þjóðtungna mun í vaxandi mæli verða takmörkuð við heimilið og jafnvel þar verður með þær farið eins og gamlar fjölskyldumublur sem við sýnum sóma þó ekki komi þær að miklum notum“. Og meira að segja þeir sem höfðu mjög sterkar tilfinningar til sinnar tungu eins og velski klerkurinn Griffiths, þeir andvarpa daprir: „Leyfum henni (velskri tungu) að deyja með friði og sóma. Þótt hún sé okkur kær þá munu fáir vilja tefja fyrir hennar dauðafró. En engin fórn væri of mikil til að koma í veg fyrir að tungan verði drepin“. Það er með öðrum orðum ekki beðið um annað en að smáþjóðatungur, (á velsku hafa líklega talað á þeim tíma um 700 þúsundir manna) fái að deyja í friði án þess að þær séu beittar ofbeldi. Það verður svo íslendingum til láns, að þeir fara ekki inn á þessa uppgjaf- arbraut og neita að trúa dapurlegum spádómum hollvinar síns, danska málfræðingsins Rasks, um að íslenskan muni senn út af deyja. Vissulega gat svo farið, eins þótt við nytum góðs af landfræðilegri einangrun, því málfé- lagið íslenska var skelfilega smátt. En við nutum þá þegar góðs af því að eiga eigin bókmenntir, Biblíu, læsi, sem og menntamenn, presta og sýslumenn, sem töluðu mál landsmanna. Við vorum allvel í stakk búnir til að taka upp boðskap Herders og honum skyldra manna: þann boðskap að hver þjóð- menning væri merkileg og á vetur setjandi. Við gátum komið okkur upp því sjálfstrausti sem segir fyrst og síðast: Við getum þetta allt sjálfir, við getum ráðið við nútímann. Og veigamikill þáttur í því er að nota okkar tungu til allra hluta. í byrjun nítjándu aldar er íslenska að einhverju leyti í svipaðri stöðu og velska: skáldskaparmál ágætt en það á eftir að nota það til ýmissa hluta sem lúta að þekkingu og fræðum tímans. Og okkar forystumönnum kemur ekki annað til hugar en að hægt sé að skrifa um hvaðeina á íslensku og þá líka að hægt væri að kenna hvað sem væri á íslensku. 50 TMM 1994:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.