Tímarit Máls og menningar - 01.12.1994, Page 62
alls sem horfði til framfara á dögum höfundar. Hún var sagan sem fól aðrar
minni sögur í sér og átti alls staðar við þar sem eitthvað gott og nýtt gerðist.
Við getum kannski skynjað eitthvað af stórfengleik þessarar sögu í augum
íslendinga á fyrri hluta 20. aldar, ef við rifjum upp hvernig Eggert Stefánsson
söngvari lauk henni í Óði til ársins 1944 í Ríkisútvarpið á nýársdag það ár.
Upphaf hans er svona:2
Vertu hljóð.og vertu kyrrlát eitt augnablik.þú hamingjusamaþjóð.
Velkominn gestur kom til þín í nótt, velkomnasti gesturinn, sem
nokkurntíma hefur komið til íslands.
Ár aldanna, ár eilífðarinnar, ár fslands. Það er komið, árið í sögu
fslands, hið eina, sem kemur og aldrei fer. Árið, sem komandi
kynslóðir, svo lengi sem nokkurt líf er á þessu landi, aldrei gleyma,
og alftaf minnast meðan hjarta nokkurs fslendings slær. Þetta ár,
sem verður blessað, og heilagt, og eilíft, svo lengi sem landið
byggist. Ár örlaganna, sem kemur með réttlœtið og frelsið til ís-
lands. Árið eina.
Já, vertu hljóð og vertu kyrrlát, þú hamingjusama kynslóð, sem
nú lifir þetta. Maður. Kona. Piltur. Stúlka og börn íslands, sem fáið
að lifa þenna nýja dag fslands.
Hví stöndum við ekki á hæstu fjöllum íslands og lýsum með
blysum þessum fagra gesti, og fögnum honum að íslenzkum sið
og segjum: „Kom þú sælt og blessað úr skauti eilífðarinnar, þú ár
aldanna, ár eilífðarinnar, — ár fslands." Já, sælt og blessað og
velkomið. Og tökum hann svo, þenna góða gest, við hönd okkar
og leiðum hann inn í höll og hreysi, í sveitir, bæi og byggðir allar,
þessa töfralands okkar, því hann er kominn, þessi þráði gestur, sem
uppfyllir allar óskir okkar, allar vonir okkar, eftir alda þrá og alda
söknuð.
Já, vertu velkomið og vertu blessað, þú, þetta eina ár, sem við
getum ekki sungið um: „Nú árið er liðið í aldanna skaut — og
aldrei það kemur til baka“ — því að þetta ár kemur alltaft'ú baka,
kynslóð eftir kynslóð meðan íslenzkt líf er lifað og íslenzk tunga
töluð. Alltaf kemur þetta ár til baka, því er það blessað og heilagt
og eilíft nú, tengt þessari þjóð og hennar sögu, hennar lífi til
heimsenda. Já, vertu þögul, og vertu hljóð og vertu þakklát, þú
hamingjusama þjóð, því að nú er árið þitt komið.
Sjálfstæðisbaráttan var ekki aðeins erkisaga fslendinga í þeim skilningi að
hana mætti draga fram á hátíðarstundum, eins og Páll á Hjálmsstöðum
gerði. Þegar menn skráðu meginþráð íslandssögunnar, til dæmis í söguyfirlit
handa börnum, þá var sá þráður allur ein samfelld forsaga sjálfstæðisbarátt-
unnar. Frásagnir af hetjum sögualdar sýndu hverjir mannkostir byggju í
60
TMM 1994:4