Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1994, Síða 134

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1994, Síða 134
upprunaleitar, þó með mismunandi hætti sé, í þessari bók, skáldsögu Fríðu Sigurðardóttur Meðan nóttin líður frá 1990 og kvikmyndinni Börnum náttúr- unnar eftir Friðrik Þór Friðriksson svo einhver dæmi séu tekin, en þau gætu vissulega verið fleiri. Hornstrandir eru í rauninni eina heila héraðið sem farið hefur algerlega úr byggð hér á landi svo að allt mannlíf er horfið þaðan og svæð- ið stendur eins og táknmynd um hið harða líf sem kynslóðirnar lifðu meðan sækja þurffi lífsviðurværið bókstaflega í greipar lands og sjávar með tækni stein- aldar eða safnaraskeiðsins. Það er því mjög nærtækt að grípa til þessarar tákn- myndar og nota í nútímanum þegar menn eru að velta því fyrir sér hverjir þeir eiginlega eru og hvaðan þeir eru komnir. Spurningar af þessu tagi virðast vera mjög áleitnar um þessar mundir og er það eðlilegt í ljósi þess að breytingar samfélagsins og þess umhverfis sem við lifum í verða hraðari og hraðari með hverju árinu sem líður. f þeim sögum sem hér eru til umfjöll- unar má segja að tekið sé á þessu við- fangsefni með tvennskonar hætti. I fyrsta lagi er fjallað um þessa spurningu í sögum þar sem segir frá íslendingum sem búsettir eru erlendis um lengri eða skemmri tíma. í fyrstu sögunni segir til dæmis frá manni sem búið hefur í aldar- fjórðung í Ástralíu. Sögumaðurinn er ungur og nýkominn á þessar slóðir og kynnist þar Loffy frænda sínum og fjöl- skyldu hans. Báðir eru þeir íslendingar, en kannski er það ennþá sterkara í þeim báðum að vera ísfirðingar (eins og í feðrum þeirra að vera Hornstrending- ar). Á yfirborðinu er allt slétt og fellt og Lofty er með afbrigðum hress og spaug- samur, en undir niðri býr einhver dulinn harmur eða tómleiki sem helst enginn má vita af vegna þess að það er ekki leyfilegur hluti af veruleikamyndinni. Mér finnst höfundi takast mjög vel að endurskapa í frásögninni það sérkenni- lega andrúmsloft og hugarástand sem ríkir hjá fslendingum sem búið hafa mjög lengi erlendis og komist hafa bæri- lega af. Önnur saga sem nær vel utan um að lýsa einsemdinni sem fylgir því að vera langdvölum langt að heiman segir ffá stúlku sem er við nám í Bandaríkjunum og á í heldur flóknu sambandi við aðal- prófessorinn sinn og hefur reyndar lent í ýmsum hremmingum öðrum í útland- inu. Þarna notar höfundur aðferð sem víðar kemur fyrir til þess að undirstrika óöryggi, en það er að fara tiltölulega ört á milli sjónarhorna og í leiðinni upp- heíja að nokkru leyti skilin á milli innri og ytri veruleika persónanna, þess sem gerist í huga þeirra og þess sem gerist fyrir utan hann. Með þessum hætti gengur lesandinn aldrei að neinu vísu og verður að hafa vara á sér við lesturinn, alveg með sama hætti og persónurnar þurfa að halda fullri athygli og fara varlega til þess að ráða við það framandi umhverfi sem þær hrærast í. Heima í nokkrum sagnanna er sögusviðið fs- land. Viðamest þeirra er sagan þar sem segir ffá fjórum félögum sem spila saman badminton og húsverðinum í íþróttahúsinu, en hann er oftast nær sögumaður. Þessir fjórir eru máttar- stólpar bæjarfélagsins, en þeir eiga hver um sig við ákveðinn innri tómleika að stríða sem gerir það að verkum að þeirra innri maður er alls ekki eins sterkur og traustur og ábyrgðarfullt ytra borðið gefur til kynna. Gamli maðurinn, hús- vörðurinn, býr yfir margvíslegri þekk- ingu um þá og sér þá í sínu sérstaka ljósi, því hann hefur fylgst með þeim allt ffá 132 TMM 1994:4
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.