Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1995, Síða 122

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1995, Síða 122
tvær bækur eru um margt samvaxnar en þó er á þeim sá stigsmunur að í þeirri fyrri var þessi spenna á milli sögumann- anna, átök efnisins við hinar loft- kenndu goðsagnir og lýsingarnar á glæsileik og eymd goðsagnarinnar, hluti af mjög þéttum texta sem leyfði söguflaumnum að halda formleysu sinni upp að vissu marki en rauf ein- hæfhi hans f sífellu með rödd sögu- mannsins — skapaði samræðu. f Kvika- silfri er hins vegar komið að sögulokum. Það þarf að ganga frá hnútum og leiða sögur til lykta og því er rokið í að loka og binda, að ganga nú ffá öllu tryggilega áður en síðustu dásamlegu síðurnar (fundur feðganna Bárðs og Halldórs í sumarbústað Geirmundar gamla) binda enda á sirkusinn. Þessi frágangsasi klýf- ur hrynjandi sagnanna. Hann er flaust- urskenndur í ljósi þess að aðall frásagn- arinnar ffam að því hefur verið að taka sér tíma, segja frá með mátulegri hægð um leið og hrynjandi munnlegu ffá- sagnarinnar var haldið við. Þessi asi skemmir líka þann veruleikafund sem er aðall sögunnar. Veruleikafundurinn stendur undir skriftunum og ljær þeim stefnu þó svo að þetta sé eins og áður sagði kannski eilítið mótsagnakennd stefna. Þótt textinn lifi á sagnavélinni, á að hún segi ótrúlegar sögur byggir hann um leið á að þær séu gagnrýndar og raktar í sundur. Þessi bók hefði orðið sterkari hefði hún ekki ánetjast ffásagn- arferlinu um of, þeirri skyldu að leiða allt til lykta. Það er eins og brái aftur af textanum rétt í lokin þegar búið er að koma skítavinnunni frá, þegar búið er að sinna skyldum við rökfræðina. Þá kemst skriffin aftur til sjálfrar sín. Hinir algerlega eðlisólíku feðgar, hinir eðlis- ólíku kraffar, renna saman og skilja á ný í hárbeittum samræðum; þetta er lýsing á samskiptum skriftarinnar og hins munnlega. Allt virðist horfið. Faðirinn er kominn í hálfgildings útlegð eftir að öll hans áform hafa runnið út í sandinn. En sonurinn er rétt að byrja. Hann er rétt að koma sér í stellingar og hripar niður: „Þetta byrjaði allt með því að...“ Og við erum sest í sagnahringekjuna. Kristján B. Jónasson Ástin sigrar grimmdina og dauoann Sjón: Augu þín sáu mig. Mál og menning. Reykjavík 1994. Rithöfundurinn Sigurjón Birgir Sig- urðsson, Sjón, hefur hingað til verið þekktur fyrir að skrifa og yrkja í anda súrrealisma og fantasíu, fallegan, ljótan texta og skringilega skondinn, uppfull- an af undarlegum andstæðum sem gaman er að eltast við en oft erfiðara að fanga og útskýra. Hann skrifar texta sem „kemur villimannlega fram við skilning góðfúss lesanda og eins virðast orðin vera rammvillt“ eins og Ástráður Ey- steinsson bendir á í ágætum ritdómi um Drenginn með röntgenaugun (TMM 4.87 bls. 507). í þriðju og nýjustu skáld- sögu sinni Augu þín sáu migkemur höf- undur ekki jafn „villimannlega“ fram við lesendur sína og oft áður því nú hefur hann gengið til liðs við hina raun- sæju frásagnaraðferð — a.m.k. að hluta! Að hluta segi ég því Sjón er ekki á því að láta furðufýrirbærin sigla sinn sjó held- ur leyfir þeim að fljóta með sem laumu- farþegum eins og hann orðar það sjálfur (DV 16. des. 1994). Þar með geta fantasíuunnendur andað léttar! Hér er nóg af undarlegum uppákomum sem afvegaleiða lesandann án þess þó að við- kvæm veruleikaskynjun hans gangi al- veg úr skorðum — enda fast haldið um taumana eins og síðar verður vikið að. Þegar sagan gerist er síðari heimsstyrj- 116 TMM 1995:2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.