Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Page 100

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Page 100
MATTHÍAS VIÐAR SÆMUNDSSON flokkun lífs og náttúru, hvernig fólk felldi reynslu sína saman í kerfi, af hverju eitt var öðru tengt á einn hátt en ekki annan. Talað er um töfraskilning, trúarskilning og vísindaskilning í þessu samhengi; töfragerðin miðaðist við dulúðuga samsemd manns og náttúru, sú næsta rakti allt sem fyrir bar til yfírnáttúrulegrar frumforsendu, en vísindagerðin byggðist á lögmálum mót- sagna og orsaka. Þessar þekkingargerðir fléttuðust með ýmsum hætti saman á „lærdómsöld11 og „upplýsingaröld", flækjan er hin sama hvort sem litið er til sextándu, sautjándu eða átjándu aldar, þótt hlutfall einstakra gerða sé með ólíku móti, enda varð þeim ekki hnikað með áróðri eða hrellirökum kirkju og valdhafa. Sveinn Pálsson tilheyrir hvað þetta varðar sama „reynsluheimi“ og Jón Guðmundsson lærði sem var manna dulvísastur og um leið fróðleiksfús á „vísindavísu“; „þá vantar ekki til utan meistara þekkingarinnar og reynsluna eður rannsak landsins“, ritaði hann í Einni stuttri undirréttingu um íslands aðskiljanlegar náttúrur. Rúmri öld eftir að þetta var fært í letur héldu tveir menn, Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson, upp í rannsóknarferð um landið, en orðspor Jóns lærða var þá með versta móti, hann var ekki lengur nefhdur Plinius íslands, heldur þótti hann ímynd hjátrúar og hindurvitna, fávisku- legrar sérvisku, eins og fram kemur í skrifum ferðalanganna. Þeir fundu ekki til skyldleika við töfraþulinn gamla, enda var splunkuný sól á himni héldu margir, sem fyrr getur. Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson ferðuðust sumarið 1750 austur í sveitir og var megintilgangur þeirra að kanna landskunnan goshver, Geysi í Haukadal, þrátt fyrir hrakspár fólks sem, eins og þeir skrifuðu síðar, „taldi það óleyfilegt að rannsaka slíka leynda dóma í náttúr- unni, því að á slíkum stöðum kynnu að búa voldugir andar, sem þyldu ekki slíka forvitni"10. Eggert og Bjarni létu slíkt sem vind um eyru þjóta, enda ætluðu þeir sér að skoða og sundurgreina íslenska náttúru, svipta hana dularklæðum sagnar og sögu með aðferðum samtímavísinda. Fortölurnar hvöttu þá miklu heldur til dáða, eða eins og segir um aðra ferð nokkru seinna, „löngun okkar til fjallgöngunnar fór stöðugt vaxandi, bæði til þess að afsanna öll þessi hindurvitni og af fleiri ástæðum”1 k Það var þó ekki laust við að færi um ferðamennina þegar til Geysis kom og lóðlínu hafði verið kastað niður í hverinn til að finna vatnsaugu í botni hans, því þá kom jafnskjótt upp heit vatnsgusa og var mildi að þeir sluppu óskaddaðir. Þetta endurtók sig og urðu þeir að flæmast frá við svo búið. Fylgdarmaður Eggerts og Bjarna varð að vonum skelkaður, enda var engu líkara, rituðu þeir síðar,,, en að hér væri einhver skyni gædd vera, sem með þessum hætti varnaði okkur að skoða inni sín“12. Þeir sáu þó brátt hvað þessu olli. Eggert og Bjarni skoðuðu margar uppsprettur á Suðurlandi þetta sumar og á næstu árum, en þær höfðu oft vakið furðublandna óvissu,eins og sjá má 98 TMM 1997:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.