Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Page 120

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Page 120
RITDÓMAR vellauðug kolkrabbafjölskylda, rekur heildverslunina Heiðnaberg, státar af þingmanni og ráðherraefhi og hefur náin tengsl við ríkisstjórn landsins; hina má líklega á hinn bóginn staðsetja nálægt miðju í íslenska samfélagsstiganum, bif- vélavirki og atvinnulaus leikkona með þrjú börn og miklar fasteignaskuldir á bakinu. Leiðir þeirra skerast þegar leik- konan fær vinnu hjá Axeli í Heiðnabergi og enn frekar þegar Hörður læknir, og svili Axels, úrskurðar móður leikkon- unnar látna af nokkru kæruleysi þannig að hún ákveður að kæra hann fyrir af- glöp í starfi. Þar með hefst einn megin- atburðaþráður sögunnar, en margir aðr- ir fléttast síðan saman við, þar á meðal valdatafl innan stærsta stjórnmálaflokks landsins, og spennan eykst stig af stigi. Á milli þessara fjölskyldna gengur svo kaþ- ólski presturinn séra Bernharður, sem að lokum grípur til sinna ráða. Af þessari lýsingu má strax greina gryfju sem ævinlega verður á vegi raun- sæishöfunda: hættuna á að persónur verði einhamar. Þessi hætta er miklu meiri í þessari sögu en í Tröllakirkju, og einhvern tíma hefði Heiðnabergsfólkið orðið gírugt auðvaldshyski og fátæka fjölskyldan saklaus fórnarlömb þess. Ólafur kemst, að mínu mati, afar vel ffá persónusköpun sinni hér, hann hefur lagt sérstaka rækt við að forðast einfald- anir með góðum árangri. Flestar megin- persónur sögunnar eru breyskar mann- eskjur, fullar af mótsögnum og hver hefúr sinn djöfúl að draga, þótt höfund- ur leggi sig ffarn um að lýsa þeim af nærfærni og skilningi, og hvorki hvít- þvær þær né fordæmir. Axel heildsali er auðtrúa eða góðviljaður einfeldningur, um leið og hann er sérgóður nautnasegg- ur, og peð í tafli annarra sem hann skilur ekki fyrr en of seint og þarf að gjalda það dýru verði. Theódóra þingmaður, kona hans, er hörkutól og miklu meiri bógur í bisness, og hikar ekki við að láta hart mæta hörðu og nota vafasöm meðul. Þegar á reynir tekur hún þó mannlega þáttinn fram yfir þann efnahagslega og verður sympatísk í lokin. Og þótt Hörð- ur læknir sé afskaplega ónærgætinn rusti í mannlegum samskiptum, ekki síst gagnvart sínum nánustu, þá á hann sínar málsbætur. Hinum megin er Dagný, leikkona sem ekkert fær að gera, sjálfstæð nútímakona sem fær ekki útrás í því fagi sem hún hefur menntað sig til, og er því ófúllnægð og reynir að brjótast undan hlutskipti sínu. Maður hennar, Tryggvi bifvélavirki, er ein minnisstæðasta per- sóna sögunnar og ffábærlega vel gerð. I byrjun leikur vafi á því hvort hann sé heill á geði, ást hans á Dagnýju og afbrýði hefur næstum sjúklega drætti. Smám saman verður skýrara að ástæður þess að hann er að missa tökin á tilveru sinni eru ekki síst glannaskapur í fjármálum, húsa- og bílakaupum sem þó eru ekki glannalegri en svo að margir munu kannast við hliðstæður. Að því leyti verð- ur Tryggvi nánast táknmynd heillar kyn- slóðar Islendinga sem lent hefur í hremmingum okurvaxta og verðbóta, sem svo eru kallaðar, og sú hengingaról reyrist sífellt fastar um háls hans. Alls þessa geldur svo fjölskyldulífið; líkt og dýr sem hefúr verið króað af er Tryggvi eins og tifandi tímasprengja, það skynja til dæmis börnin hans betur en aðrir, og springur þegar álagið er orðið honum um megn. Hann er því sannarlega fórn- arlamb í vissum skilningi, enda á hann samúð lesenda óskipta í hinni átakan- legu lokasenu þar sem hann hefur teflt djarft og velur börn sín umfram sjálfan sig. Annað áberandi stef sem sameigin- legt er báðum meginfjölskyldum sög- unnar er jafnrétti kynjanna og mun í því efni vafalaust sitt sýnast hverjum. Lykilpersóna verksins erþó séra Bern- harður og þótt hann sé öðrum þræði eins konar sendiboði fara ffam í hans huga vangaveltur um ýmsar af veigamestu hugmyndum sögunnar. Eitt leiðarstef þessarar sögu má kalla efa, sagan er fuU af róttækum efasemdum, ekki bara um þjóðfélagið sem við byggjum og hefur 118 TMM 1997:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.