Allt um íþróttir - 01.10.1953, Síða 51
2. Vilhjálmur Ólafsson (ÍR)
11.6 sek.
3. Leifur Tómasson (KA) 11.6
Garðar Arason sleppti úrslita-
hlaupinu vegna þátttöku í lang-
stökki, söm var þá hafið. Hörð-
ur virtist ekki leggja hart að sér,
en ætla má, að hlaupið samsvari
а. m. k. 11.0 í logni. Vilhjálmur
og Leifur eru skemmtilegir
spretthlauparar, sérstaklega þó
sá síðarnefndi, sem sýndi í mót-
inu, hve bráðefnilegur íþrótta-
maður hann er. Heimamehn
dáðust líka að sínum manni, og
hvöttu hann óspart bæði börn
og fullorðnir.
Meistari 1952 varð Hörður
Haraldsson á 10.7 sek.
Aður en úrslitin í 100 m fóru
fram, voru 1500 m hlaupnir.
Iveppendur voru 6:
1. Sigurður Guðnason (ÍR)
4:06.7.
2. Kristján Jóhannsson (IR)
4:07.8.
3. Svavar Markússon (KR)
4:08.6.
4. Einar Gunnlaugsson (Þór)
4:11.5.
5. Þórhallur Guðjónsson (UM-
FK) 4:25.1.
б. Þarsteinn Sveinsson (HSK)
4:32.4.
Sigurður varð þannig meistari
í 1500 m í þriðja sinn í röð og
jafnframt fyrsti meistari þessa
móts. Það mátti sjá, að hann
„átti“ þessa grein. Strax í byrj-
un tók hann forystuna og fór
greitt. „Hann sprengir sig, hann
þolir ekki vindinn“, heyrði ég
sagt fyrir aftan mig, og vissulega
hefur vindurinn verið harðasti
andstæðingur Sigurðar fram til
þessa. En nú lét hann engan bil-
bug á sér finna. Svavar vildi þó
ekki sleppa Sigurði og fylgdi rétt
á eftir, en Kristján drógst 20—
30 m aftur úr. A síðasta hring
fóru hann og Einar að síga á, en
bilið var of langt. En Svavar gaf
upp móðinn, þegar Sigurður sleit
marksnúruna, og það færði
Kristján sér í nyt, skauzt fram
úr honum á síðustu 10 metrun-
um. Tími Einars er athyglisyerð-
ur og hlauparinn ekki síður. Ak-
ureyringar eiga í honum efni í
aíburða langhlaupara, ef hann
leggur að sér við æfingar. 1952
sigraði Sigurður á 4:08.6.
200 m hlaup kvenna var hörm-
ung á að sjá. Asgerður Jónas-
dóttir (HSÞ)) varð meistari á
30.6 sek., á undan Erlu Sigur-
jónsdóttur (UMFR), sem hljóp
á 33.2 seg.
Meistari 1952: Margrét Hall-
grímsdóttir (UMFR), 27.9 sek.
í 110 m grindahalupi mætti
aðeins 1 af skráðum keppend-
um, Pétur Rögrivaldsson (KR).
Hann hljóp vel, á 16.1 selc., og
vann sinn fyrsta meistaratitil.
Pétur á mikla framtíð fyrir
ÍÞRÓTTIR
49