Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2011, Page 55
Sport | 55Helgarblað 19.–21. ágúst 2011
„Hjá United
fær Young
liðlega 17 milljónir
króna í vikulaun
Stoðsending
til United
í sína bestu menn og markmiðið
virðist ætíð vera að sigla lygnan
sjó um miðja deild. Ashley Yo-
ung er þess vegna orðinn leik-
maður Manchester United og er
þegar farinn að setja sinn svip á
sóknarleik liðsins. Liðsins sem
hin liðin þurfa að stoppa ef þau
ætla að eiga möguleika á enska
titlinum í ár.
Flestar stoðsendingar
Arkítektinn Ryan Giggs er kom-
inn af léttasta skeiði, þó drjúgur
sé enn, og hinn marksækni Paul
Scholes hefur lagt skóna á hill-
una. Þó erfitt sé að fylla skörðin
sem þeir tveir skilja eftir sig má
ljóst vera að Ashley Young er,
ásamt Nani, leikmaðurinn, sem
stjórinn Alex Ferguson horfir
til þegar kemur að því að búa
til marktækifæri. Eins og áður
sagði hefur aðeins Spánverjinn
Cesc Fabregas lagt upp fleiri
mörk í ensku úrvalsdeildinni
undanfarin fimm ár. Hann hef-
ur alls lagt upp 53 mörk. Það er
afrek í ljósi þess að hann hefur í
besta falli leikið með miðlungs-
góðum leikmönnum í Aston
Villa og um skamma hríð hjá
Watford. Hjá United fær Young
liðlega 17 milljónir króna í viku-
laun til þess að einbeita sér að
því að viðhalda þessari tölfræði.
Í ágúst 2007 var Ashley Young að undirbúa sig fyrir sinn fyrsta landsleik fyrir
England. Leikurinn var gegn Rússlandi, fór fram í Moskvu og varð að vinnast.
Það gekk ekki eftir en Ashley kom inn á sem varamaður. Honum tókst ekki að
setja mark sitt á leikinn en setti í kjölfarið mark sitt á fjömiðlaumfjöllun út um
allan heim. Fram steig ungur snyrtifræðingur, Sara Taylor að nafni, og sagði
frá því að á leikdegi hefði hún horft upp á landsliðsmanninn unga stunda
sjálfsfróun í vefmyndavél.
Þau höfðu hist á
stefnumóta síðunni Webcamo
og tekið tal saman. Young,
sem kallaði sig Lewis, líklega
eftir æskuvini sínum Lewis
Hamilton, hafi sagst vera í við-
skiptaerindum í Moskvu. Hún
greindi svo frá því í smáatriðum
hvað Young sagði en það er
ekki prenthæft. Hann lýsti því
hvernig hann vildi stunda með
henni kynlíf. Klukkan var hálf
ellefu að kvöldi en leikurinn fór
fram daginn eftir. Sara Taylor sagði við fjölmiðla: „Í fyrstu virtist hann aðlaðandi
og indæll náungi. En svo fór hann úr fötunum og fór að sýna á sér manndóminn.
Ég ætlaði ekki að trúa þessu. Hann var mjög vel vaxinn niður en ég var forviða
á því að hann skyldi bera á sér liminn,“ sagði hún en þess má geta að á þessum
tíma var Young í föstu sambandi. Taylor sagði líka að hann hefði orðið pirraður
vegna þess að hún vildi ekki leika sama leik. Hann kvaddi. „Ég ætlaði bara að
daðra en bjóst ekki við þessu,“ sagði hún hneyksluð.
Hneykslunin kom þó ekki í veg fyrir að hún hitti hann aftur, nokkrum dögum
síðar, á sama vettvangi. „Þá var hann í Middlesbrough í viðskiptaerindum, sagði
hann,“ höfðu fjölmiðlar eftir henni en þetta var í aðdraganda leiks Aston Villa og
Blackburn í ensku deildinni. „Hann varð mjög klæminn og sendi mér númerið sitt
og grátbað mig að hringja. „Sendu mér skilaboð svo ég viti að þú sért til í alvöru,“
sagði hann. Ég hringdi bara til að heyra í honum hljóðið,“ sagði hún sakleysið
uppmálað. Hann hafi aftur viljað fara í tölvuna og því lauk á þann veg að hann
fullnægði sjálfum sér fyrir framan myndavélina. Svipað var uppi á teningnum
þegar rannsóknarblaðamaður News of the World skráði sig inn í hennar nafni og
gaf sig á tal við Young, en það var í þeim miðli sem sagt var frá málinu.
Ashley Young hneykslaði árið 2007:
Skandalíseraði fyrir
fyrsta landsleikinn
Klæminn Ashley Young „hitar upp“ fyrir
fyrsta landsleikinn sinn.
V
erkfall leikmanna ógn-
ar nú upphafi spænsku
úrvalsdeildarinnar
sem á að hefjast nú um
helgina. Á miðvikudag
slitnaði upp úr viðræðum milli
fulltrúa samtaka leikmanna og
forsvarsmanna spænsku deild-
arinnar. Í síðustu viku hótuðu
samtök leikmanna tveggja vikna
verkfalli í tveimur efstu deildum
Spánar ef ekki tækist að semja
um sérstakan varasjóð sem á
að verja launagreiðslur til leik-
manna ef knattspyrnulið verða
gjaldþrota. Annar fundur hefur
verið boðaður á föstudag þar
sem lokatilraun verður gerð til
að semja.
Þrátt fyrir þessu óvissu hafa
félögin í La Liga eytt stórfé í nýja
leikmenn fyrir tímabilið. Og þar
hafa hinir nýríku Malaga-menn
staðið öðrum framar.
Byltingin í Malaga
Það vakti athygli þegar hinn
vellauðugi katarski milljarða-
mæringur Abdullah Bin Nasser
Al-Thani festi kaup á Malaga
í fyrrasumar fyrir 36 milljónir
evra. Sjeikinn lét strax til sín taka
og réð Manuel Pellegrini sem
stjóra og fjármagnaði kaupin á
Enzo Maresca, Martin Demic-
helis og Julio Baptista í kjölfarið.
Það dugði hinu nýríka félagi til
að ná 11. sæti spænsku úrvals-
deildarinnar á síðasta tímabili.
Í sumar hefur Al-Thani heldur
betur opnað gullkistur og hefur
ekkert lið, ekki einu sinni Barce-
lona eða Real Madrid, eytt hærri
fjárhæðum í sumar. Samtals 58
milljónum evra. Það hefur verið
keypt stórt og reynt að fá þekkt
nöfn til liðsins. Stærsta fjár-
festing sumarsins voru kaupin
á spænska landsliðsmannin-
um Santi Cazorla frá Villarreal
á 21 milljón evra. Þá var franski
landsliðsmiðjumaðurinn Je-
remy Toulalan keyptur frá Lyon
á 11 milljónir evra og miðju-
maðurinn Isco frá Valencia og
varnarmaðurinn Nacho Mon-
real frá Osasuna komu báðir
fyrir 6 milljónir evra. Aðrir nafn-
togaðir leikmenn á borð við Joa-
quin frá Valencia (4,2 m. evra),
Joris Mathijsen frá Hamburg
(2,5 m. evra) og gamla brýnið
og markamaskínan Ruud van
Nistelrooy (frítt frá Hamburg)
gengu einnig til liðs við félagið.
Malaga hefur í krafti gríðarlegra
auðæfa eigandans fjárfest í alls 9
nýjum leikmönnum fyrir kom-
andi leiktíð og enn er verið að
orða dýra og þekkta leikmenn
við félagið nú þegar um tvær
vikur eru eftir af félagsskipta-
glugganum.
Erkifjendur eyða
Real Madrid hefur styrkt sig enn
frekar með fimm nýjum leik-
mönnum í sumar enda er Jose
Mourinho staðráðinn í að binda
enda á einokun Barcelona í La
Liga eftir að hafa endaði í 2. sæti
þriðja árið í röð á síðustu leik-
tíð. Real hefur pungað út 55
milljónum evra til leikmanna-
kaupa og munar þar mestu um
portúgalska vinstri bakvörðinn
Fabio Coentrao sem keyptur
var á 30 milljónir evra frá Ben-
fica. Nuri Sahin, sem var lykil-
maður í meistaraliði Borussia
Dortmund í fyrra, mun koma
til með að styrkja nú þegar gríð-
arsterka miðju Real en hann
kostaði 10 milljónir evra. Kaup-
in á Sahin gætu reynst kjara-
kaup tímabilsins. Hinn ungi og
efnilegi franski varnarmaður
Raphael Varane kom frá Lens
á 10 milljónir evra og framherj-
inn Jose Maria Callejon kom frá
Espanyol á 5. Tyrkneski lands-
liðsmaðurinn Hamit Altintop
var fenginn á frjálsri sölu frá
Bayern Munich.
Spánar- og Evrópumeistarar
Barcelona hafa losað sig við
nokkra aukaleikara en aðeins
fengið tvo leikmenn til liðs við
sig í sumar. Þeir hafa líka kost-
að sitt. Félagið hefur, líkt og erki-
fjendurnir í Real, eytt 55 millj-
ónum evra, í Cesc Fabregas, sem
keyptur var á 29 milljónir evra í
vikunni frá Arsenal eins og frægt
er orðið, og chileska kantmann-
inn Alexis Sanchez, sem kom á
26 milljónir evra frá Udinese.
Baráttan um þriðja sætið
La Liga hefur oft verið köll-
uð tveggja liða deild þar sem
Barcelona og Real Madrid eru
í sérflokki og önnur lið berjast
um brauðmolana þar fyrir neð-
an. Á því verður að líkindum lítil
breyting í ár. Valencia hefur náð
3. sætinu síðustu tvær leiktíðir
þrátt fyrir fjárhagsvanda og sölu
á lykilleikmönnum. Valencia
hefur keypt leikmenn fyrir 23
milljónir evra í sumar. Villarreal
hefur aðeins eytt 9,8 milljónum
evra, er búið að missa einn af
sínum lykilmönnum, Cazorla,
og þarf að fjárfesta ef það ætlar
að ná fjórða sætinu aftur líkt og
á síðasta tímabili. Atletico Mad-
rid hefur misst Sergio Agüero
en eftir vonbrigði síðasta tíma-
bils þar sem liðið hafnaði í 7.
sæti ætti það að eiga digran sjóð
til að fylla skarð hans. Nú þegar
hefur liðið þó eytt 23 milljónum
evra.
Ljóst er að þrátt fyrir að ótt-
ast sé um fjárhagslega framtíð
spænskra knattspyrnuliða, eiga
þau enn peninga til að eyða.
Þau sex lið sem hér hefur ver-
ið fjallað um hafa samtals eytt
tæplega 224 milljónum evra í
nýja leikmenn, eða sem nem-
ur rúmlega 36,5 milljörðum ís-
lenskra króna.
n Nýr eigandi spænska smáliðsins með botnlausa vasa
n Hefur dælt peningum í félagið í sumar
Malaga slær við
stórveldunum
Dýrastur allra Það er ekki oft sem bakverðir eru keyptir dýrum dómum en
Fabio Coentrao kostaði Real Madrid 30 milljónir evra.
Cazorla kynntur Malaga keypti
spænska landsliðsmanninn Santi
Cazorla fyrir 21 milljón evra. Félagið
hefur eytt 58 milljónum evra í sumar.
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Fótbolti