Náttúrufræðingurinn - 2012, Blaðsíða 33
33
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
gefið hugmynd um loftslag á mynd-
unartíma. Aukin tíðni snjóflóða er
t.d. yfirleitt tengd kaldara lofts-
lagi og mikil tíðni skriðufalla tengd
blautum og umhleypingasömum
tímabilum. Á sama hátt er tíðni
snjóflóða yfirleitt minni í mildara
loftslagi. Lítil tíðni ofanflóða er talin
benda til að veðurfar sé nokkuð
stöðugt og umhleypingar í minna
lagi.3
Með svipuðum rannsóknum og
í Noregi mætti kortleggja snjóflóða-
sögu og upphleðslu landformanna
á Þverárdal og þannig hugsanlega
fá mynd af snjóflóðasögu á Trölla-
skaga.
Líklega hefur virkni snjóflóða
breyst í takt við loftslagsbreytingar
og verið mest á kaldari tímabilum
á borð við litlu ísöld. Engu að síður
teljum við ólíklegt að snjóflóða-
virkni hafi stöðvast alveg á hlýrri
tímabilum, eins og fyrir um 5–8
þúsund árum þegar loftslag var
mun mildara.23,24 Við teljum t.d. að
aðstæðum hafi e.t.v. svipað til núver-
andi aðstæðna sums staðar á vestur-
strönd Noregs. Þar eru vetur mildir
og rakir en engu að síður snjóþungt
til hárra fjalla, þaðan sem snjóflóð
geta borist niður á autt láglendi.3
Þess vegna teljum við, að
ókönnuðu máli, myndunarsögu
snjóflóðadyngjanna á Þverárdal
teygja sig aftur til þess tíma er jökull
hopaði úr dalnum. Hafi virkni snjó-
flóða verið mjög lítil um skeið er
líklegt að skógur eða kjarr hafi vaxið
niður í dalbotninum, en merki um
skóga hafa fundist upp í 450–500 m
hæð í Skíðadal.25 Snjóflóðadyngj-
urnar á Þverárdal eru í 200–300
m hæð yfir sjó. Trjáleifar gætu því
fundist í dyngjunum hafi snjóflóða-
virkni einhvern tíma verið það lítil
að trjágróðri hafi gefist færi á að
vaxa í og við snjóflóðafarvegina.
Að lokum
Eins og dæmi frá síðustu áratugum
sanna, búa snjóflóð á Íslandi yfir
gríðarlegum krafti og öflugum rof-
mætti. Það ætti því ekki að koma
á óvart hversu stórtæk þau eru við
myndun og mótun landslags til dala
og fjalla.
Helstu gerðir jarðfræðilegra
ummerkja af völdum snjóflóða finn-
ast allar á Tröllaskaga. Rofform, stak-
steinar og grjótdreifar eru algengustu
ummerkin. Snjóflóðadyngjurnar á
Þverárdal og Holárdal eru hins
vegar mikilfenglegustu ummerkin
á svæðinu og með þeim mestu sem
höfundar þekkja á Íslandi. Vel má
greina helstu snjóflóðafarvegi víða
á Tröllaskaga með jarðfræðilegum
ummerkjum einum saman, og á
það líklega almennt við um marga
eða jafnvel flesta snjóflóðafarvegi á
landinu öllu.
Snjóflóðadyngjurnar eru afger-
andi landform sem talið er að
myndist nær eingöngu við setburð
snjóflóða. Fersk yfirborðsummerki
og stærð dyngjanna benda til að
stór snjóflóð séu mjög tíð á afdölum
Skíðadals, Þverárdal og Holárdal.
Stærðin bendir einnig til að snjó-
flóðavirkni hafi varað þar í þús-
undir ára.
Summary
Geomorphological evidence of
snow avalanches in the Trölla-
skagi peninsula, northern Iceland
Snow avalanches are a constant threat in
Iceland; accounts of tragic accidents
from recent decades and centuries are
preserved in the literature. Avalanches
are more likely to be reported from the
vicinity of buildings, roads or traditional
hiking routes, than in uninhabited areas
or areas rarely visited. However, from
geomorphological evidence a large
number of avalanches are known to oc-
cur in such areas. As the understanding
of geomorphological evidence of snow
7. mynd. a) Jarðvegstorfa undir Dunhagaskarði í
Hörgárdal > 1 m2 að stærð, borin fram af snjóflóði. b)
Rofsár eftir stórt snjóflóð í október 1995 á Upsadal
ofan Dalvíkur. Neðst á myndinni er Brunnklukku-
tjörn en flóðið féll yfir hana, skóf upp leirbotn hennar
og dreifði yfir árhvamminn svo sjá mátti ljósa slikju
sumarið eftir. – a) Pile of soil and vegetation below
an avalanche path in the Hörgárdalur valley, eroded
and transported by a snow avalanche. b) Erosional
landforms made by a huge avalanche in October
1995 can still be seen in the slopes of Upsadalur val-
ley, Dalvík, N-Iceland. Ljósm./Photos: a) Brynjólfur
Sveinsson, 2009; b) Sveinn Brynjólfsson, 2011.
a)
b)