Náttúrufræðingurinn - 2012, Blaðsíða 164
Náttúrufræðingurinn
164
sína til að koma því í kring að ráðu-
neytið gerðist áskrifandi. Fundi lauk
þegar kvenkyns starfsmenn ráðu-
neytisins, að meðtöldum ráðherra,
lögðu niður störf og skunduðu upp
á Skólavörðuholt í kröfugöngu á
kvennafrídegi.
Niðurstaða: Vel heppnaður
fundur, hlustað var á skoðanir
HÍN, áhugi sýndur á málum NMÍ
og ekki að sjá að vilji væri fyrir því
að stinga þeim undir stól.
Heimsókn til Álfheiðar
Ingadóttur
Í framhaldi af fundi með mennta-
málaráðherra var ákveðið að fá
fund með Álfheiði Ingadóttur,
alþingismanni og fv. ritstjóra Nátt-
úrufræðingsins, um málefni Nátt-
úruminjasafns. Hún sat um hríð
í nefnd um safnið og er öllum
hnútum kunnug. Þessi fundur var
í febrúarbyrjun. Fulltr. HÍN: Árni
Hjartarson, Jóhann Þórsson og
Rannveig Guicharnaud. Álfheiður
minnti á að lóðinni gömlu í Vatns-
mýri var úthlutað undir safnið á
100 ára afmæli HÍN og var því eins-
konar morgungjöf ríkis og borgar
til félagsins. Einnig rifjaði hún upp
þá undarlegu sögu er þáverandi
menntamálaráðherra, ásamt þáver-
andi borgarstjóra, gaf Listaháskóla
lóðina á hæpnum forsendum og
hvernig Listaháskólinn lét hana
sér úr greipum ganga í maka-
skiptum fyrir lóðir Björgólfsfeðga
í Skuggahverfi. Álfheiður kvað
lóðina í Vatnsmýri nú eftir hrun
aftur komna í eigu ríkis eða borgar
og skv. deiliskipulagi enn skráða
undir náttúruminjasafn. Hvatti hún
stjórn HÍN til að hitta Jón Gnarr
borgarstjóra eða Dag B. Eggertsson
formann borgarráðs og fá afstöðu
þeirra í málinu og lofaði sjálf að ýta
á eftir málinu innan ríkisstjórnar-
flokkanna.
Eftir þessa fundi er stjórn HÍN
heldur bjartsýnni en áður á að eitt-
hvað kunni að gerast í málefnum
Náttúruminjasafns. Næsta skref er
fundur með umhverfisráðherra um
málefni safnsins og stöðu þess gagn-
vart Náttúrufræðistofnun, en hann
hefur verið ákveðinn 2. mars nk.
Mikilvægt er að knýja á um
að lóðin við Öskju verði áfram
hugsuð sem staður fyrir safnið og
að sem fyrst verði hafist handa við
framkvæmdir á henni.
Styrkumsóknir
Sótt var um styrki til Landsbankans
og Arion-banka hf. vegna kynningar-
herferðar fyrir Náttúrufræðinginn.
Frá Arion-banka fengust 50.000 kr.
ekkert frá öðrum.
Sótt var um 1.000.000 kr. til
Umhverfisráðuneytis, sömu upp-
hæð og í fyrra, en þá höfðust
450.000 kr. upp úr krafsinu.
Umsagnir um frumvörp
Fjölmörg frumvörp frá Alþingi hafa
verið send HÍN til umsagnar. Stjórn
félagsins hefur ekki séð sér fært
að senda frá sér athugasemdir eða
álit. Oft er erfitt að gera slíkt í nafni
félags eins og HÍN og svo kostar
það talsverða vinnu, sem engin
þóknun kemur fyrir og raunar óvíst
um þakklæti líka.
Starfið framundan
Aðalatriðið í starfinu framundan er
að halda útgáfu Náttúrufræðings-
ins í horfinu þannig að ekki taki
að myndast útgáfuhali á ný. Fjölga
þarf áskrifendum og auka auglýs-
ingatekjur til að útgáfan standi
undir sér. Ýta þarf jafnt og þétt á
eftir málum NMÍ.
Uppdráttur Gunnlaugs Halldórssonar að fyrirhuguðu náttúrugripasafni frá 1954.